Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á Vef Outcome hugbúnaðar ehf. Til að breyta eða hætta áskrift smelltu hér.
Síðustu mánuðir hafa verið viðburðaríkir
hjá Outcome hugbúnaði. Árið hefur farið vel af stað og framþróun bæði
Vefstjórans og kannanakerfisins
hefur verið töluverð síðustu misseri.
Nýtt vefsetur fyrirtækisins var opnað í lok febrúar, en mótun þess mun verða viðvarandi og markmiðið er að reyna nýja tækni á vef fyrirtækisins áður en hún er sett í almenna notkun.
Við bjóðum Art Schalk velkominn aftur til fyrirtækisins, en hann vann mikið starf í kringum uppbyggingu Outcome kannanakerfisins á sínum tíma.
Frá áramótum hefur áhersla á námskeiðahald enn frekar verið aukin og þegar hafa verið haldin fimm námskeið um kannanakerfið og eitt um vefstjórann. Áframhaldandi námskeiðahald er fyrirhugað á næstu vikum og mánuðum.
Með kveðju, starfsfólk Outcome hugbúnaðar ehf.
Þörf fyrir öflugar leitarvélar hefur aukist jafnt og þétt. Þetta gerist samfara
markvissari notkun vefsetra sem upplýsingasafna og umfang þeirra hefur
margfaldast síðustu árin. Outcome hefur unnið að uppbyggingu öflugrar
leitarvélar sem leitar ekki eingöngu í texta á vefsíðum heldur í öllu
gagnasafni vefsins og þá skiptir engu hvort gögnin er sett fram á pdf. , word ,
powerpoint eða öðru formi. Öll gögn finnast og þar með eykst gagnsemi
vefsetranna verulega. Leitarvélin hefur þegar verið sett upp á nokkrum
vefsetrum og kjörið er að prófa hana á www.outcome.is,
www.samband.is og www.sa.is
. Hægt er að fá tilboð í áskrift að leitarvél óháð vistunarfyrirtæki vefseturs.
Fá frekari
upplýsingar um leitarvél
Um síðustu mánaðarmót var Outcome kannanakerfið uppfært, breytingarnar eru öllum
áskrifendum kerfisins aðgengilegar. Um er að ræða nokkuð stóra uppfærslu, en
þetta er sú fyrsta á árinu. Margt nýtt bætist við.
Sjá nánar um kerfissögu Outcome kannanakerfisins
Fá frekari
upplýsingar um rafrænar kannanir
Nýtt spjallþráðakerfi hefur verið tekið í notkun og nýtingarmöguleikar þess eru
miklu fjölbreyttari en fyrra kerfisins sem þó stenst allar grunnkröfur. Í
kerfinu sem er lokað, koma þátttakendur fram undir nafni/notendanafni.
Utanumhald um spjallið er auðveldara en áður og hægt er að senda fréttaskeyti á
hópinn sem tekur þátt í umræðum um tiltekin málefni. Kerfið býður þannig upp á
mun fleiri möguleika en fyrra kerfi og skapar tækifæri til ýmiskonar fagumræðu
og vinnslu verkefna óháð staðsetningu þátttakenda.
Fá frekari
upplýsingar um spjallþræði
Notkun
kannanakerfisins er í sífelldri þróun og nú er unnið að uppbyggingu lausna sem
gera forsvarsmönnum í félögum og fyrirtækjum mögulegt að bera ákvarðanir og
stefnu undir valda hópa. Kannanakerfið er nýtt til að senda út spurningar til
einstaklinga sem fyrirfram hafa skráð sig til þátttöku í stefnumyndun í
mismunandi málaflokkum. Íbúalýðræði af þessum toga er í mótun en tæknilega geta
nú stjórnmálamenn og aðrir þeir sem fara með völd í umboði annarra leitað til
umbjóðenda sinna þegar það á við. Þetta eru stór skref en vilji til að beita
aðferðum af þessum toga er þó nokkur og tilraunir þegar hafnar á nokkrum
stöðum.
Dæmi um þetta er t.d. Netsveit
Reykjanesbæjar
Fá frekari upplýsingar um netsveit og rafrænar kannanir
Ferðavefurinn
http://iceland.vefur.is sem nýtur mikilla vinsælda er kominn í hendur
nýrra rekstraraðila, Ýma ehf., sem hafa sett kraft í uppbyggingu hans og
endurnýjun. Iceland on the Web er upplýsingasafn um íslenska vefi og þar geta
fyrirtæki og aðrir skráð vefsetur sín og bætt þar með í safnið (rúmlega 3500
aðilar skráðir). Vefurinn fær tugi þúsunda heimsókna í hverri viku þannig að
líklegt er að skráning þar geti skilað árangri. Vefurinn hefur sterka stöðu á
helstu leitarvélum og ef orðið " Iceland " er slegið inn í leitarglugga er
líklegt að þessi vefur birtist á fyrstu eða annarri síðu, sem sannarlega dregur
athygli að honum.
Í maí n.k. hyggst Outcome ehf. senda út rafrænan spurningavagn til 500 stjórnenda hjá stærstu fyrirtækjum landsins. Viðskiptavinum Outcome stendur til boða að kaupa spurningar í vagninum .
Tilboðsverð á spurningu er 17.500 kr. og innifalið í því er uppsetning og framkvæmd auk niðurstöðu á Excel formi (fjöldi svara, vikmörk hlutfalla, töflur og myndir). Niðurstöður úr vagninum munu gefa mjög góðar vísbendingar.
Ef þú vilt forvitnast meira um rafræna spurningavagna , eða panta spurningar í vagninn , vinsamlegast hafið samband við art@outcome.is eða í síma 533 1440.