Fyrirtækið
Hjá Outcome hugbúnaði starfar fjölbreyttur hópur sem á að baki margra ára reynslu á sviði upplýsingatækni. Styrkur hópsins er falinn í þekkingu á upplýsingatækni og getu til að nýta hana í íslensku viðskiptaumhverfi og samfélagi. Markmiðið er að gera betur í dag en í gær og verkin endurspegla það markmið. Fagmennska, metnaður og heiðarleiki eru leiðarvísar í daglegum störfum hjá Outcome hugbúnaði.
Viðskiptavinurinn er sá sem aldrei má gleymast. Hans þarfir og óskir ráða för. Sannarlegur árangur næst ekki nema að viðskiptavinurinn nái að nýta þær lausnir sem starfsfólk Outcome leggur honum til og því styðjum við okkar fólk til árangurs í hverju því verkefni sem leysa þarf. Við erum í liði með okkar viðskiptavinum í hverju því sem þeir takast á við.
Byggt á þessu hefur Outcome þróað vefumsjónarkerfi, rafræn vefverslunarkerfi, kannanakerfi, fréttabréfakerfi og kosningakerfi ásamt því að sinna sértækri hugbúnaðargerð með það að leiðarljósi að leysa einföld og flókin viðfangsefni sem viðskiptavinir fyrirtækisins standa frammi fyrir.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.








