Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

5. júlí 2008

Rafrænar atkvæðagreiðslur um kjarasamninga

Frá því í maí hafa farið fram atkvæðagreiðslur um kjarasamninga nokkura stéttafélaga og viðsemjenda þeirra. Nýbreytnin er sú að nú nota stéttafélögin upplýsingatæknina í atkvæðagreiðslum.

20. maí 2008

Námskeiðskerfi - Aukin gagnvirkni í vefum SFR og STRV

Nú nýverið tóku stéttarfélögin SFR og STRV upp nýtt skráningar og umsýslukerfi fyrir námskeið sem þau standa fyrir. Um er að ræða veflægt kerfi sem tekur við öllum námskeiðsskráningum, heldur utan um þær og skapar samskiptavettvang við þá sem hafa skráð sig.

13. maí 2008

Samhæft skólamat í 26 skólum

Í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga er nú unnið í annað skiptið að samhæfðu skólamati í 26 grunnskólum um allt land.

17. apríl 2008

Outcome á Verk og Vit 2008

Stórsýning tileinkuð byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð verður haldin í íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal 17.-20. apríl 2008.

Outcome er í bás B8.
Kíktu við!

25. mars 2008

Rafræn neytendahjálp með Leiðakerfi neytenda

Nýlega opnaði Gísli Tryggvason, Talsmaður neytenda, ásamt viðskiptaráðherra Björgvini G. Sigurðssyni nýtt vefkerfi sem bætir upplýsingagjöf um neytendarétt. Um er að ræða kerfi sem leiðir notandann að niðurstöðu um sinn rétt og hjálpar til við að ná fram úrlausn.

25. mars 2008

Hagvangur opnar nýjan vef

Skömmu fyrir páska opnaði Hagvangur nýjan vef. Hinn nýi vefur tengdist breyttu heildarútliti á fyrirtækinu Hagvangi. Einkennislitir og merki fyrirtækisins breyttust og á sama tíma var vef fyrirtækisins breytt í takt við það. Outcome sá um uppsetningu vefsins en hann byggir á Outcome vefstjóranum.

15. janúar 2008

Outcome kannanakerfið útgáfa 3.2 - Ný útlit og læsilegri kannanir

Rafrænar kannanir hafa notið síaukinna vinsælda á síðustu árum, en aðferðin býður upp á markvissa og hagkvæma nálgun við hópa sem áður voru utan seilingar. Með aukinni notkun rafrænna kannanakerfa eru notendur og svarendur farnir að gera meiri kröfur um útlit og virkni.

19. desember 2007

Forstjóri Universal Pictures verslar jólagjafirnar í gegnum Outcome vefverslun

Eins og má lesa á fréttavefnum Vísi (visir.is) þá eru ekki eingöngu íslendingar sem gera sér grein fyrir ágæti 66° Norður varanna. Nýverið bættust hjónin Ron og Kelly Meyer í hóp ánægðra viðskiptavina 66° Norður en Ron er forstjóri Universal Pictures.

27. nóvember 2007

Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Ný miðstöð - Nýr vefur

Í byrjun nóvember opnaði Nýsköpunarmiðstöð nýjan vef. Vefurinn endurspeglar starfsemi miðstöðvarinnar sem varð til á liðnu sumri með samruna Iðntæknistofnunar og Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins.

26. október 2007

Uppfærslur og endurhönnun

Nú á haustdögum hafa nokkrir vefir sem nýta Outcome vefstjórann verið uppfærðir og fengið andlitslyftingu við það tækifæri. Þetta eru vefir Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, Starfsmannafélags í almannaþjónustu og Hvalasafnsins á Húsavík.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome vefstjóri vandaðir vefir byggðir á öflugu en einföldu vefumsjónarkerfi