Fréttir
3. október 2007
Reykjavíkurborg endurnýjar samning um notkun á Outcome vefkannanakerfinu

Reykjavíkurborg og Outcome hugbúnaður hafa í dag endurnýjað samning um notkun borgarinnar og stofnanna hennar á Outcome kannanakerfinu. Kerfið hefur verið í notkun hjá borginni allt frá árinu 2002 og byggt á fenginni reynslu hefur samningurinn verið endurnýjaður.
21. september 2007
Outcome smíðar Leiðakerfi neytenda

Talsmaður neytenda og Outcome hugbúnaður gerðu nýverið með sér samning um smíði Leiðakerfis neytenda. Um er að ræða smíði á veflægum hugbúnaði sem leiðir neytendur að tiltækum upplýsingum um réttindi sín, auðveldar framsetningu kvartana til söluaðila þegar ástæða þykir til og leitun til kvörtunarnefnda eða annarra sem leysa úr ágreiningsmálum neytenda þegar annarra kosta er ekki völ.
6. september 2007
360° stjórnendamat vinsælt í haust
Á síðustu árum hefur vilji til ýmiskonar mælinga í atvinnurekstri aukist og þá er ekki síður horft til þátta sem ekki er hægt að lesa út úr hefðbundnu fjárhagsbókhaldi.
Á okkar tímum er þekking og færni lykill árangurs og þar eru stjórnendur í lykilhlutverkum sem leiðtogar og þjálfarar árangursríkra liðsheilda. Það hvernig þeir standa sig í sínum hópi skiptir því miklu máli og því hafa mörg framsækin fyrirtæki hafið notkun á 360° stjórnendamati.
16. júlí 2007
Mamma opnar nýjan vef
Nýverið opnaði MAMMA nýjan vef. Vefurinn kynnir Mömmu sem býður þjónustu og ráðgjöf á sviði síma- , sjónvarps, og internetmála ásamt því að bjóða heimavörn. Vefurinn veitir einnig aðgengi að þjónustu Mömmu og hægt er að panta hana í gegnum vefinn.
21. júní 2007
Kvennaslóðir í nýjan búning
|
Í gær opnaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, nýjan vef Kvennaslóða. Vefurinn er hannaður af Gagarín og settur upp af Outcome. |
![]() |
2. maí 2007
Nýsköpun - Lykill að framtíðinni
Nýverið opnaði nýr vefur Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda. Vefurinn er framlag Outcome hugbúnaðar til þessarar keppni. Tiltrú þeirra sem að Outcome standa á nýsköpun og því að hún sé lykill að framtíðinni varð til þess að ákveðið var að styðja við framgang keppninnar með þessum hætti. Vefurinn er lykill að keppninni og andlit hennar á vefnum.
27. apríl 2007
Rafrænt formannskjör
Nú í apríl fór fram formannskosning hjá Samtökum atvinnulífisins. Í þetta skiptið var nýtt rafræn kosningalausn sem gerði þátttakendum mögulegt að greiða atkvæði í gegnum eigin tölvu.
4. apríl 2007
Auglýsingakeppnir á Íslandi og í Færeyjum
Auglýsingakeppnir á Íslandi og í Færeyjum. Framkvæmdin í höndum Outcome sem notaði sérsmíðaðar kannanalausnir við framkvæmd keppnanna.
28. mars 2007
Hönnunarvettvangur opnar upplýsingavef um íslenska hönnun
Nýr vettvangur til kynningar á hönnuðum skapast með opnun á vefnum www.honnunarvettvangur.is. Vefurinn inniheldur mikið af upplýsingum um hönnun og verk íslenskra hönnuða.
16. febrúar 2007
Pourquoi pas - Franskt vor á Íslandi
Fyrir nokkru var vefur menningarhátíðarinnar Pourquoi pas? - Franskt vor á Íslandi opnaður. Þessi hátíð er um margt sérstök en hún stendur fram til 12. maí. Hátíðin er sett upp að frumkvæði Frakka og sendiherra þeirra hér á landi hefur verið einn aðal hvatamaður þessarar hátíðar.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Við gefum þeim okkar bestu meðmæli"
Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir
Attentus










