Fréttir
22. mars 2006
Héraðsdómstólarnir opna vefsetur
Dómstólaráð og héraðsdómstólarnir á Íslandi hafa opnað vef á slóðinni www.domstolar.is. Um er að ræða nokkuð umfangsmikinn vef sem kynnir starfsemi þessara aðila,birtir greinar um ýmis lagaleg málefni, en einnig eru á vefnum birtir dómar dómstólanna og dagskrá allra héraðsdómstóla.
24. febrúar 2006
Outcome á Íslenska markaðsdeginum
Í dag fór Íslenski markaðsdagurinn fram á Nordica hótel. Fjölbreytt og fjölmenn ráðstefna með innlendum sem erlendum fyrirlesurum hefur staðið yfir frá því í morgun og lýkur í kvöld með afhendingu á Lúðrunum, íslensku auglýsingaverðlaununum 2005.
21. desember 2005
Reykjavíkurborg – Balanced Scorecard árangursmælingar
Í nóvember framkvæmdi starfsmannaskrifstofa Reykjavíkurborgar umfangsmikla könnun á meðal starfsmanna borgarinnar. Könnunin, sem náði til allra sviða borgarinnar og um 6.400 starfsmanna, byggði á nýtingu Outcome kannanakerfisins og niðurstöðurnar eru nýttar inn í Balanced Scorecard árangursmælingar sem Reykjavíkurborg hefur tekið upp.
15. desember 2005
Sjóminjasafnið opnar nýjan vef
Í fyrrihluta desember opnaði Sjóminjasafnið nýjan vef. Vefurinn er tileinkaður starfsemi safnsins og ýmsum fróðleik um sjósókn og sjómennsku. Vefnum er ætlað að endurspegla starfsemi safnsins, fræða og vekja áhuga á sjósókn fyrri tíma og merkri atvinnuuppbyggingu sem kom íslensku þjóðinni inn í nútímann.
14. nóvember 2005
Kosið um Edduna með rafrænu kosningakerfi
Í gær, sunnudag, voru úrslit kosninga um Eddu, íslensku sjónvarps- og kvikmyndaverðlaunin, kynnt. Kosningin var margþætt en notast var við rafræn kosningakerfi í þessum kosningum.
31. október 2005
Kannanakerfið uppfært
Nú um helgina var Outcome kannanakerfið uppfært. Með uppfærslunni hefur fjöldi smærri atriða í uppsetningar- og úrvinnsluhluta verið lagaður og einnig hefur viðmót aðeins breyst. Unnið er með skipulögðum hætti að uppfærslum og framþróun kerfisins og þar sem kerfið er miðlægt skilar uppfærslur sér strax til allra notenda.
21. október 2005
Nýr vefur Starfsmenntar - nýjungar í aðgengsmálum
Nýverið opnaði Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks nýjan vef http://www.starfsmennt.is/.
Vefurinn er upplýsingavefur um með hvaða hætti sjóðurinn styður við menntun félagsmanna og veitir einnig aðgengi að umsóknareyðublöðum.
11. október 2005
Esomar samþykkir umsókn Outcome hugbúnaðar
Á fyrrihluta ársins sóttu starfsmenn Outcome hugbúnaðar um aðild að Esomar samtökunum, sem eru samtök ábyrgra rannsóknaraðila.Markmið þeirra er að auka gæði rannsókna á markaðsmálum, þjónustu og samfélagsmálum. Í samtökunum eru 4000 aðilar í 100 löndum, en samtökin hafa starfað frá árinu 1948.
12. september 2005
Samtök atvinnulífsins - Nýtt útlit og uppfært kerfi
Frá fyrrihluta sumars hefur verið unnið að gagngerum breytingum á útliti vefs Samtaka atvinnulífsins. Nýtt útlit sem þó byggði á eldri uppbyggingu vefsins var hannað af Arngrími Arnarssyni hjá Örkinni í nánu samráði við eigendur vefsins. Þó útlitsbreytingin sé mest áberandi var kerfið sem vefurinn byggir á endurnýjað og ýmsir nýir möguleikar hafa skapast í vefrekstrinum.
5. september 2005
Actavis nýtir kannanakerfi Outcome hugbúnaðar
Nýverið var gengið frá áskriftarsamningi við Actavis. Settur hefur verið upp aðgangur að Outcome kannanakerfinu fyrir fyrirtækið. Nú getur starfsfólk Actavis sjálft sett upp og framkvæmt kannanir. Fyrst um sinn verður kerfið notað til upplýsingaöflunar á mannauðssviðinu en í framhaldinu er horft til annarra markhópa.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Tímaáætlanir standast og starfsmenn veita gagnlegar ábendingar"
Hag og upplýsingasvið
Sambands íslenskra sveitarfélaga
Leit









