Fréttir
9. júní 2010
Outcome gerir könnun fyrir Háskólann í Reykjavík

HR-ingum gengur vel að fá vinnu. Þetta kemur fram í Alumni-könnun sem skólinn lét Outcome nýverið gera meðal útskrifaðra HR-inga. Könnunin var send til þeirra sem útskrifast hafa frá Háskólanum í Reykjavík frá árinu 1999, Tækniháskóla Íslands (THÍ), Tækniskóla Íslands (TÍ) og Viðskiptaháskólanum í Reykjavík (VHR). Könnunin var framkvæmd með Outcome kannanakerfinu og gerð í gegnum tölvupóst dagana 21. apríl til 10. maí 2010.
3. júní 2010
Outcome opnar vef Bankasýslu ríkisins

Bankasýsla ríkisins er ný stofnun sem tók til starfa í janúar á þessu ári. Bankasýslan leitaði til Outcome hugbúnaðar þegar kom að uppsetningu á vef stofnunarinnar. Markmiðið með vefnum er í senn að upplýsa um störf Bankasýslunnar og skapa möguleika til að taka við rafrænum umsóknum í störf sem auglýst eru á þeirra vegum í fjármálastofnunum. Vefurinn hefur þegar sannað gildi sitt á þessu sviði og almenn ánægja er með útkomuna.
1. júní 2010
MP Banki gerir samning við Outcome

Nýverið gerði MP Banki samning við Outcome hugbúnað um notkun á Outcome kannanakerfinu. Markmiðið er að nýta kerfið til að kanna hug viðskiptavina og fá fram afstöðu þeirra til þjónustu. Einnig er horft til kannana innanhúss, en fullyrða má að mikið og metnaðarfullt uppbyggingarstarf fari fram í MP banka.
17. maí 2010
Heilsa opnar vef hjá Outcome

Nýverið var nýr vefur Heilsu opnaður. Vefurinn var settur upp af Outcome og byggður á Vefstjóranum sem er aðalvefumsjónarkerfi fyrirtækisins. Vefurinn er mikil upplýsingaveita um heilsuvörur og heilsufæði. Upplýsingakerfi Heilsu er beintengt vefnum þannig að fram í hann eru lesnar vöruupplýsingar með vélrænum hætti úr kerfum Heilsu.
11. maí 2010
Kaffitár gerir starfsmannakönnun með Outcome

Outcome lauk nýverið við framkvæmd viðhorfskönnunar á meðal starfsmanna Kaffitárs. Um var að ræða tölvupóstkönnun sem send var til allra starfsmanna við brennslu og þjónustu. Slíkar kannanir hjálpa vinnuveitendum við að skilja viðhorf og liðan starfsmanna á hverjum tíma og þar með tækifæri til að skapa vinnuumhverfi sem skilar ánægju og árangri. Auk þess getur þetta leitt til þess að hugmyndir starfsmanna fái brautargengi.
22. apríl 2010
Umsóknarkerfi vekur lukku

Þann 26.mars s.l. úthlutaði Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra styrkjum til atvinnumála kvenna í Hugmyndahúsi háskólanna. Úthlutaðir styrkirnir voru 55 að þessu sinni til fjölbreyttra verkefna vítt og breitt um landið. Umsóknarferlið var rafrænt og fór fram í gegnum vefsíðuna www.atvinnumalkvenna.is sem byggir á Outcome Vefstjóranum.
20. apríl 2010
Rannsókn á högum íslenskra lækna

Þessa stundina er í gangi umfangsmikil rannsókn á starfsánægju, lífsánægju og geðheilsu lækna á Íslandi í sambanburði við norska lækna. Rannsóknin byggir á stórri spurningakönnun til allra starfandi lækna á Íslandi og er framkvæmdt af starfsmönnum Outcome með Outcome kannanakerfinu.
30. mars 2010
N1 leigir Outcome Kannanakerfið

N1 hefur gert samning við Outcome hugbúnað um afnot af Outcome kannanakerfinu. Bryddað verður upp á þeirri nýjung í þessu samstarfi að tengja birtingu niðurstaðna við stjórnendahugbúnaðinn TARGIT og auðvelda þannig stjórnendum notkun niðurstaðna við ákvarðanatöku.
26. mars 2010
Lögfræðingafélagið opnar vefverslun

Lögfræðingafélag Íslands hefur opnað vefverslun á heimasíðu sinni. Um er að ræða viðbót við núverandi vef Lögfræðingafélagsins en útbúin var sérútfærsla af Outcome vefverslunarkerfinu.
5. mars 2010
Outcome nýtt við kosningu Eddu verðlaunanna 2010

Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Lipurt og hjálpsamt starfsfólk"
Sigrún Ingimarsdóttir
Verkefnastjóri - LSH









