Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

17. maí 2010

Heilsa opnar vef hjá Outcome

Nýverið var nýr vefur Heilsu opnaður. Vefurinn var settur upp af Outcome og byggður á Vefstjóranum sem er aðalvefumsjónarkerfi fyrirtækisins. Vefurinn er mikil upplýsingaveita um heilsuvörur og heilsufæði. Upplýsingakerfi Heilsu er beintengt vefnum þannig að fram í hann eru lesnar vöruupplýsingar með vélrænum hætti úr kerfum Heilsu.

11. maí 2010

Kaffitár gerir starfsmannakönnun með Outcome

Outcome lauk nýverið við framkvæmd viðhorfskönnunar á meðal starfsmanna Kaffitárs. Um var að ræða tölvupóstkönnun sem send var til allra starfsmanna við brennslu og þjónustu. Slíkar kannanir hjálpa vinnuveitendum við að skilja viðhorf og liðan starfsmanna á hverjum tíma og þar með tækifæri til að skapa vinnuumhverfi sem skilar ánægju og árangri.  Auk þess getur þetta leitt til þess að hugmyndir starfsmanna fái brautargengi.

22. apríl 2010

Umsóknarkerfi vekur lukku

Þann 26.mars s.l. úthlutaði Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra styrkjum til atvinnumála kvenna í Hugmyndahúsi háskólanna. Úthlutaðir styrkirnir voru 55 að þessu sinni til fjölbreyttra verkefna vítt og breitt um landið. Umsóknarferlið var rafrænt og fór fram í gegnum vefsíðuna www.atvinnumalkvenna.is sem byggir á Outcome Vefstjóranum.

20. apríl 2010

Rannsókn á högum íslenskra lækna

Þessa stundina er í gangi umfangsmikil rannsókn á starfsánægju, lífsánægju og geðheilsu lækna á Íslandi í sambanburði við norska lækna. Rannsóknin byggir á stórri spurningakönnun til allra starfandi lækna á Íslandi og er framkvæmdt af starfsmönnum Outcome með Outcome kannanakerfinu.

30. mars 2010

N1 leigir Outcome Kannanakerfið

N1 hefur gert samning við Outcome hugbúnað um afnot af Outcome kannanakerfinu. Bryddað verður upp á þeirri nýjung í þessu samstarfi að tengja birtingu niðurstaðna við stjórnendahugbúnaðinn TARGIT og auðvelda þannig stjórnendum notkun niðurstaðna við ákvarðanatöku.

26. mars 2010

Lögfræðingafélagið opnar vefverslun

Lögfræðingafélag Íslands hefur opnað vefverslun á heimasíðu sinni. Um er að ræða viðbót við núverandi vef Lögfræðingafélagsins en útbúin var sérútfærsla af Outcome vefverslunarkerfinu.

5. mars 2010

Outcome nýtt við kosningu Eddu verðlaunanna 2010

Heillaráð - rannsóknir og ráðgjöf nýttu Outcome kannanakerfið við rafræna kosningu meðal félaga í Íslensku sjónvarps- og kvikmyndaakademíunni vegna kjörs á handhöfum Edduverðlaunanna 2010, líkt og undanfarin ár.

26. febrúar 2010

Val fólksins - auglýsingaherferð ársins á mbl.is

Í dag og næstu daga gefst fólki kostur á að kjósa bestu auglýsingaherferð á Íslandi árið 2009. Hægt er að taka þátt með því að smella á tengilinn hér að neðan eða með því að fara inn á fréttavefinn mbl.is.

Taka þátt í vali fólksins 2010

11. febrúar 2010

Icelandair notar Outcome Kannanakerfið

Icelandair gerði nýverið samning við Outcome hugbúnað um notkun á Outcome Kannanakerfinu. Starfsmenn Icelandair fengur ítarlega kennslu á kerfið hjá Outcome sem gerir þeim mun auðveldara að fullnýta alla kosti kerfisins.

15. janúar 2010

Rammagerðin opnar vefverslun með Outcome

Nýverið opnaði Rammagerðin nýja vefverslun á léninu www.icelandgiftstore.com.  Verslunarkerfið var sett upp af Outcome hugbúnaði, en kerfið var aðlagað að þörfum Rammagerðarinnar sem býður mjög fjölbreytt vöruúrval. Rammagerðin hefur lengi verið leiðandi verslun í sölu á íslensku handverki, ullarvörum og minjagripum.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Fagmennska fyrsta flokks!"

Árni Steinar Stefánsson
Eures


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit