Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

23. desember 2009

Lífeyrissjóður bankamanna opnar nýjan vef

Nýverið tók Outcome að sér að endurhanna og uppfæra vef Lífeyrissjóð bankamanna. Um er að ræða endurnýjun á eldri vef en Lífeyrissjóður bankamanna hefur verið góður viðskiptavinur Outcome um árabil. Ákveðið var að létta yfirbragð vefsins og endurskoða efnisframsetningu og auka þar með notagildi vefsins fyrir sjóðsfélaga. 

8. desember 2009

Vefverslun 66°Norður vekur athygli

Vefverslunin www.66north.is var eitt af umfjöllunarefnum um velheppnaða útrás með liðstyrk vefsins á ráðstefnu Útflutningsráðs þann 1. desember s.l., en hátt í 500 manns mættu á ráðstefnuna. Vefverslun 66north er sett upp með Outcome vefverslunarkerfinu og hefur hún hlotið verðskuldaða athygli víða um heim.

3. desember 2009

SART opna nýjan vef hjá Outcome

Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði (SART) opna nýjan vef hjá Outcome hugbúnaði. Um er að ræða endurskipulagningu vefsins og breytingu á útliti. Vefurinn nýtir nýjustu útgáfu Outcome vefstjórans sem eykur og bætir virkni hans. 

27. nóvember 2009

Vefurinn skapar verðmæti - Ráðstefna

Þriðjudaginn 1. desember verður haldin ráðstefna á vegum Útflutningsráðs þar sem fjallað verður um viðskipti á netinu. Þar mun Helga Viðarsdóttir markaðsstjóri 66° Norður segja frá árangri í netviðskiptum. Frá árinu 2005 hefur Outcome hugbúnaður byggt upp vefverslanir með 66° Norður.

4. nóvember 2009

Ríkislögreglustjórinn gerir samning við Outcome

Ríkislögreglustjórinn og Outcome hugbúnaður hafa undirritað samning um leigu á Outcome kannanakerfinu. Til að byrja með hyggst embættið nýta sér kerfið til kannanagerðar á meðal starfsmanna embættisins.

29. október 2009

Nýtt kerfi - Outcome Fréttabréfakerfið

Nú í október var Outcome fréttabréfakerfið formlega kynnt til sögunnar sem nýtt kerfi markaðsett undir Outcome vörumerkinu.  Með tilkomu þess eru lykilvörur Outcome hugbúnaðar orðnar fimm talsins. Um er að ræða heildstætt kerfi þar sem auðvelt er að setja upp og senda út sérhönnuð fréttabréf í tölvupósti. Lausn þessi er kjörin fyrir félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki.

16. október 2009

Samtök atvinnulífsins (SA) kanna atvinnuhorfur

Outcome hugbúnaður hefur frá árinu 2008 haft umsjón með reglubundnum viðhorfsmælingum SA á meðal sinna félaga þar sem framtíðarhorfur í íslensku atvinnulífi eru mældar.  

12. október 2009

Outcome endurnýjar vef LÍÚ

Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) var að opna nýjan og glæsilega vef. LÍÚ fékk Outcome hugbúnað til að endurhanna vef samtakanna en samtökin eru meðal elstu viðskiptavina fyrirtækisins og tímabært var að færa vefinn í nútímalegra horf og yfirfara efnisskipan vefsins með hliðsjón að nýjum áherslum.

7. október 2009

Outcome á meðal 200 sprotafyrirtækja

Annað árið í röð er Outcome hugbúnaður á lista Frjálsrar verslunar yfir áhugaverðustu sprotafyrirtæki á Íslandi. Á bak við val listans eru fjölmargar ábendingar að sögn blaðsins. Þetta er mikil viðurkenning á þeirri miklu vinnu sem starfsmenn Outcome hafa lagt í þróun og nýsköpun. 

25. september 2009

Vefverslun 66° Norður – nú einnig í Noregi

Umboðsaðili 66° North í Noregi opnaði fyrir skömmu vefverslun  byggða á Outcome vefverslunarlausnum en fyrir eru 3 vefverslanir með vörur 66 North í reknar á mismunandi markaðssvæðum.  Allt eru þetta umfangsmiklir markaðs- og upplýsingavefir.

Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome fréttabréfakerfi - betri samskipti við viðskiptavini