Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

19. desember 2007

Forstjóri Universal Pictures verslar jólagjafirnar í gegnum Outcome vefverslun

Eins og má lesa á fréttavefnum Vísi (visir.is) þá eru ekki eingöngu íslendingar sem gera sér grein fyrir ágæti 66° Norður varanna. Nýverið bættust hjónin Ron og Kelly Meyer í hóp ánægðra viðskiptavina 66° Norður en Ron er forstjóri Universal Pictures.

27. nóvember 2007

Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Ný miðstöð - Nýr vefur

Í byrjun nóvember opnaði Nýsköpunarmiðstöð nýjan vef. Vefurinn endurspeglar starfsemi miðstöðvarinnar sem varð til á liðnu sumri með samruna Iðntæknistofnunar og Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins.

26. október 2007

Uppfærslur og endurhönnun

Nú á haustdögum hafa nokkrir vefir sem nýta Outcome vefstjórann verið uppfærðir og fengið andlitslyftingu við það tækifæri. Þetta eru vefir Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, Starfsmannafélags í almannaþjónustu og Hvalasafnsins á Húsavík.

3. október 2007

Reykjavíkurborg endurnýjar samning um notkun á Outcome vefkannanakerfinu

Reykjavíkurborg og Outcome hugbúnaður hafa í dag endurnýjað samning um notkun borgarinnar og stofnanna hennar á Outcome kannanakerfinu. Kerfið hefur verið í notkun hjá borginni allt frá árinu 2002 og byggt á fenginni reynslu hefur samningurinn verið endurnýjaður.

21. september 2007

Outcome smíðar Leiðakerfi neytenda

Talsmaður neytenda og Outcome hugbúnaður gerðu nýverið með sér samning um smíði Leiðakerfis neytenda. Um er að ræða smíði á veflægum hugbúnaði sem leiðir neytendur að tiltækum upplýsingum um réttindi sín, auðveldar framsetningu kvartana til söluaðila þegar ástæða þykir til og leitun til kvörtunarnefnda eða annarra sem leysa úr ágreiningsmálum neytenda þegar annarra kosta er ekki völ.

6. september 2007

360° stjórnendamat vinsælt í haust

Á síðustu árum hefur vilji til ýmiskonar mælinga í atvinnurekstri aukist og þá er ekki síður horft til þátta sem ekki er hægt að lesa út úr hefðbundnu fjárhagsbókhaldi.

Á okkar tímum er þekking og færni lykill árangurs og þar eru stjórnendur í lykilhlutverkum sem leiðtogar og þjálfarar árangursríkra liðsheilda. Það hvernig þeir standa sig í sínum hópi skiptir því miklu máli og því hafa mörg framsækin fyrirtæki hafið notkun á 360° stjórnendamati.

16. júlí 2007

Mamma opnar nýjan vef

MammaNýverið opnaði MAMMA nýjan vef. Vefurinn kynnir Mömmu sem býður þjónustu og ráðgjöf á sviði síma- , sjónvarps, og internetmála ásamt því að bjóða heimavörn. Vefurinn veitir einnig aðgengi að þjónustu Mömmu og hægt er að panta hana í gegnum vefinn.

21. júní 2007

Kvennaslóðir í nýjan búning

Í gær opnaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, nýjan vef Kvennaslóða. Vefurinn er hannaður af Gagarín og settur upp af Outcome.

kvennaslodir

2. maí 2007

Nýsköpun - Lykill að framtíðinni

Nýverið opnaði nýr vefur Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda. Vefurinn er framlag Outcome hugbúnaðar til þessarar keppni. Tiltrú þeirra sem að Outcome standa á nýsköpun og því að hún sé lykill að framtíðinni varð til þess að ákveðið var að styðja við framgang keppninnar með þessum hætti. Vefurinn er lykill að keppninni og andlit hennar á vefnum.

27. apríl 2007

Rafrænt formannskjör

Nú í apríl fór fram formannskosning hjá Samtökum atvinnulífisins. Í þetta skiptið var nýtt rafræn kosningalausn sem gerði þátttakendum mögulegt að greiða atkvæði í gegnum eigin tölvu.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Kynntu þér Outcome kannanakerfið