Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

11. október 2005

Esomar samþykkir umsókn Outcome hugbúnaðar

Esomar-logoÁ fyrrihluta ársins sóttu starfsmenn Outcome hugbúnaðar um aðild að Esomar samtökunum sem eru samtök ábyrgra rannsóknaraðila.Markmið þeirra er að auka gæði rannsókna á markaðsmálum, þjónustu og samfélagsmálum. Í samtökunum eru 4000 aðilar í 100 löndum, en samtökin hafa starfað frá árinu 1948. Samtökin eru vettvangur þeirra sem stunda rannsóknir en þau standa einnig fyrir ráðstefnum og útgáfu ýmiskonar um rannsóknastarf.

Þeir sem gerast aðilar að samtökunum þurfa að gangast undir þær vinnureglur í sínum rannsóknum sem samtökin boða og þar er vönduð aðferðafræði og mannvirðing í hávegum höfð.

Nú nýverið fór fram úttekt starfsmanna Esomar á vinnubrögðum Outcome hugbúnaðar og í framhaldi af því hefur aðildarumsókn verið samþykkt. Þátttaka í starfi Esomar gefur starfsmönnum Outcome aðgang að skýrum siðareglum, en einnig bjóða samtökin upp mikið fræðslustarf og spennandi umræðuvettvang sem gerir okkur mögulegt að verða virkir þátttakendur í þeirri umræðu og þróun sem á sér stað á hverjum tíma.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Tímaáætlanir standast og starfsmenn veita gagnlegar ábendingar"

Hag og upplýsingasvið
Sambands íslenskra sveitarfélaga


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome vefstjóri vandaðir vefir byggðir á öflugu en einföldu vefumsjónarkerfi