Fréttir
21. október 2005
Nýr vefur Starfsmenntar - nýjungar í aðgengsmálum
Nýverið opnaði Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks nýjan vef www.starfsmennt.is. Vefurinn er upplýsingavefur um með hvaða hætti sjóðurinn styður við menntun félagsmanna og veitir einnig aðgengi að umsóknareyðublöðum.
Sérstök áhersla var lögð á aðgengi sjónskertra og litblindra, en uppsetning þeirrar virkni var unnin af forriturum Outcome hugbúnaðar í samstarfi við fyrirtækið SJÁ sem var ráðgefandi um aðgengismálin.
Þegar Ingibjörg Guðmundsdóttir formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna kynnti vefinn fjallaði hún sérstaklega um mikilvægi þess að hugað væri að aðgengismálum og vildi að þessi vefuppsetning yrði öðrum og sérstaklega þeim sem að menntamálum koma hvatning til að koma þessum aðgengismálum í gott horf.
Á þessum vef er boðið upp á sérhannaðar stillingar fyrir lesblinda notendur og höfum við ákveðið að kalla stillingarnar Textaham. Má nefna að hægt er að stilla:
- Bakgrunnsliti
- Leturstærð
- Liti á letri
- Stafabil
- Orðabil
- Línubil
- Leturgerð
- Einnig er hægt að merkja sérhljóða sérstaklega
![]()
Smellið á gleraugun í hægra horninu á starfsmennt.is til að komast í textahaminn og notið fellivalsgluggana (glugga þar sem hægt er að velja möguleika úr lista) efst á síðunni til að breyta stillingum.
Til að fá vefinn aftur í eðlilegt horf (eins og hann var í upphafi) skal smella á hnappinn upprunalegt útlit.
Vefurinn er byggður á Outcome vefstjóranum. Fyrirtækið SJÁ ehf. var leiðbeinandi í uppbyggingu textahamsins og útlitið var hannað af auglýsingastofunni Fabrikkunni.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Þjónusta sem Outcome veitir er framúrskarandi"
Heiðar Kristinsson
Sölu- og markaðsstjóri, Tölvumiðlun hf









