Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

21. desember 2005

Reykjavíkurborg – Balanced Scorecard árangursmælingar

 

Í nóvember framkvæmdi starfsmannaskrifstofa Reykjavíkurborgar umfangsmikla könnun á meðal starfsmanna borgarinnar. Könnunin, sem náði til allra sviða borgarinnar og um 6.400 starfsmanna, byggði á nýtingu Outcome kannanakerfisins og niðurstöðurnar eru nýttar inn í Balanced Scorecard árangursmælingar sem Reykjavíkurborg hefur tekið upp.

Niðurstöðurnar mynda grunn að mikilvægum upplýsingum um viðhorf starfsmanna til starfsumhverfis, stjórnunarhátta og starfsþróunar og gefa einnig nokkuð skýra mynd af stöðu mannauðsmála innbyrðis á hinum ýmsu sviðum borgarinnar.

Umfang þessarar könnunar var mikið, en góður undirbúningur af hálfu starfsmannaskrifstofu og Balance Scorecard hóps gerði það að verkum að framkvæmdin gekk vel fyrir sig og niðurstöðurnar var hægt að nýta strax að lokinni könnun.

Framkvæmdin
Eftir skoðun á þeim möguleikum sem fyrir hendi voru við framkvæmd þessarar könnunar sem var ákveðið að framkvæma nokkrar aðskildar kannanir eftir sviðum og lesa svo saman kjarnagögnin úr þeim í eina umfangsmikla niðurstöðukönnun fyrir borgina í heild.

Þannig gerði hvert svið Reykjavíkurborgar könnun á meðal sinna starfsmanna, en sviðin notuðu öll sama spurningakjarna sem þau gátu svo bætt viðbótarspurningum á. Innan hvers sviðs var svo boðið upp á mismunandi nálgun (bakgrunnsbreytur) við starfsmannahópinn.

Fjölþætt nálgun við starfsfólk
Kannanir voru sendar í tölvupósti á hluta hópsins, hluti hópsins fékk send lykilorð að lokuðum kannanasvæðum og loks svaraði hluti starfsmanna könnunum skriflega og þau gögn voru svo slegin inn í kannanakerfið síðar.

Niðurstöður nýtast á fleiri en einum stað

Niðurstöður voru sameinaðar innan hvers sviðs þannig að stjórnendur sviðanna hafa nú góða yfirsýn yfir sitt svið, og loks fékk starfsmannaskrifstofan öll gögnin samlesin þannig að þau nýttust til heildarmats á sviðunum.
Þegar hefur ákveðin úrvinnsla gagna farið fram og megin niðurstöður lagðar fram. Frekari úrvinnsla fyrir borgina í heild og innan sviða borgarinnar stendur yfir en markmiðið með könnuninni er að mæla árangur, styrkja stefnumiðaða mannauðsstjórnun hjá Reykjavíkurborg og gera samanburð við höfuðborgir Norðurlanda mögulegan.

Reglubundnar mælingar
Reykjavíkurborg hefur nýtt Outcome kannanakerfið allt frá árinu 2002. Bæði yfirstjórn og einstök fyrirtæki og stofnanir borgarinnar nýta kerfið með reglubundnum hætti í tengslum við árangursmælingar svo og almennar rannsóknir. Áætlað er að mæla með þessum hætti stöðu mannauðsmála Reykjavíkurborgar tvisvar á ári og fá þannig skýrari mynd af árangri og þróun mannauðsmála.

Rvk-logo-stor

 

Í notkun frá árinu 2002

Bæði yfirstjórn og einstök fyrirtæki og stofnanir borgarinnar nýta kerfið með reglubundnum hætti í tengslum við árangursmælingar svo og almennar rannsóknir.

 

 

 

 

 

 

Radhus

 


 


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Góð og lipur þjónusta á sanngjörnu verði"

Margrét Sveinbjörnsdóttir,
AP almannatengsl


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Kynntu þér Outcome kannanakerfið