Fréttir
24. febrúar 2006
Outcome á Íslenska markaðsdeginum
Í dag fór Íslenski markaðsdagurinn fram á Nordica hótel. Fjölbreytt og fjölmenn ráðstefna með innlendum sem erlendum fyrirlesurum hefur staðið yfir frá því í morgun og lýkur í kvöld með afhendingu á Lúðruðum, íslensku auglýsingaverðlaununum 2005.
Kosning Lúðranna fór að venju fram með Outcome kannanakerfinu þar sem dómefnd, skipuð af ÍMARK, valdi bestu auglýsingarnar á síðasta ári. Outcome stóð einnig fyrir rafrænni könnun meðal starfsfólks auglýsingastofanna þar sem því gafst kostur á að kjósa bestu auglýsingarnar að þeirra mati.
Niðurstöður beggja kosninganna verða kunngjörðar í kvöld og verður spennandi að sjá hvort starfsfólk auglýsingastofanna sé sammála dómnefnd ÍMARK.

Outcome hugbúnaður var með kynningarbás á ráðstefnunni í dag og kynnti vörur fyrirtækisins.

Niðurstöður skemmtikönnunar meðal starfsfólks auglýsingastofanna bíða dreifingar.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.









