Fréttir
22. mars 2006
Héraðsdómstólarnir opna vefsetur
Dómstólaráð og héraðsdómstólarnir á Íslandi hafa opnað vef á slóðinni www.domstolar.is. Um er að ræða nokkuð umfangsmikinn vef sem kynnir starfsemi þessara aðila,birtir greinar um ýmis lagaleg málefni, en einnig eru á vefnum birtir dómar dómstólanna og dagskrá allra héraðsdómstóla.
Vefurinn hefur því margvíslegt upplýsingagildi og í fyrsta skipti eru dómar héraðsdómstólanna birtir með rafrænum hætti. Þessi nýbreytni bætir mjög aðgengi að dómum, en í vefnum er leitarvél sem gerir notendum mögulegt að setja inn skilyrta leit í dómasöfnum og fá þannig nokkuð nákvæmar niðurstöður úr dómaleit.
Vefurinn sem skiptist í 10 vetré sem hvert hefur sitt yfirbragð er byggður á Outcome vefstjóranum. Einnig er þar sérhæfð lausn til birtinga á dómum og dagskrá dómstólanna. Útlitshönnun og vefráðgjöf voru í höndum Athygli ehf. Daglegur rekstur vefsins er í höndum Dómstólaráðs og dómstólanna sjálfra.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Góð og lipur þjónusta á sanngjörnu verði"
Margrét Sveinbjörnsdóttir,
AP almannatengsl









