Fréttir
29. ágúst 2006
Staðlaráð Íslands hefur vefviðskipti með staðla
Í upphafi sumars opnaði Staðlaráð Íslands nýjan vef sem inniheldur fullkomið vefviðskiptakerfi þar sem viðskiptavinir geta sinnt viðskiptum við ráðið í gegnum netið. Kerfið er sambyggt vefumsjónar- og vefviðskiptakerfi sem er aðlagað að gagnaviðskiptum. Í kerfinu er fullkomin greiðslumiðlun þannig að með krítarkortum er hægt að ganga frá öllum greiðslum og einnig er viðskiptavinum veitt góð yfirsýn yfir viðskiptasögu sína.
Vörurnar eru niðurhlaðanlegar (skjöl) og ákveðnar reglur gilda um gildistíma þeirra. Í samhengi við þetta er nú unnið að uppsetningu sérstakrar staðlavaktar sem hjálpar viðskiptavinum við að fylgjast með útgáfu nýrra staðla án þess að því fylgi fyrirhöfn.
Starfsmenn Staðlaráðs reka gagnagrunn þar sem haldið er utan um alla staðla sem í boði eru á Íslandi. Þessi gagnagrunnur á svo samskipti við vefkerfið og samskipti kerfanna eru að mestu sjálfvirk.
Útlit vefsins var hannað af Agli Harðar, en vefhönnun hans er vel þekkt og mjög frambærileg. Uppsetningin byggir á Outcome vefstjóranum, Outcome vefverslun og einnig var um töluverða sérforritun að ræða enda eru 27.000 vörur selt í vefverslunina.


Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Einfalt og þægilegt kannanakerfi sem uppfyllir okkar öryggis- og gæðakröfur"
Hrannar Már Hallkelsson
Teris









