Fréttir
28. júní 2006
Lögmannafélag Íslands opnar nýjan vef
Nýverið opnaði Lögmannafélag Íslands (LMFÍ) nýjan vef sem leysir eldri vef félagsins af hólmi.
Um er að ræða nokkuð umfangsmikinn upplýsingavef sem ætlað er að upplýsa notendur lögfræðiþjónustu, um hvar aðgengi að henni er að fá og almennt um starfsemi og þjónustu lögmanna. Hluti þessara upplýsinga er að finna á fjölmörgum tungumálum og markmiðið er að gera sem flestum mögulegt að leita eftir lögfræðiþjónustu á Íslandi.
Einnig rekur félagið fjölþætt félags- og fræðslustarf fyrir lögmenn og á vefnum verður að finna upplýsingar um þá þætti starfseminnar og það starf sem félagið býður uppá á hverjum tíma.
Í vefnum er lokaður félagsmannavefur sem inniheldur ýmsar upplýsingar sem þeim einum eru ætlaðar og svo spjallborð þar sem félagsmenn sjálfir skiptast á skoðunum um það sem helst ber á góma.
Vefurinn byggir að hluta á eldri vef félagsins en einnig er margt nýtt sem bætist við. Fulltrúar félagsins tóku virkan þátt í mótun verkefnisins og Egill Harðarson vefhönnuður sá um útlitshönnun. Vefurinn er byggður á Outcome vefstjóranum og er settur upp sem CSS vefur en það gerir hann aðgengilegan og fljótvirkan.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Outcome has offered us great service and a lot of knowledge about websurveys"
Ellen van der Aart Lieman
Actavis - Netherlands









