Fréttir
3. nóvember 2006
66° Norður opna vefi og vefverslanir
66° Norður opnaði fyrir skömmu með þrjá nýja vefi í OUTCOME vefstjóranum. Um eru að ræða umfangsmikla markaðs- og upplýsingavefi fyrir innlendan og erlenda markaði.
Vefirnir eru tengdir öflugum vefverslunum þar sem viðskiptavinir geta skoðað og keypt vörur með öruggum hætti. Í verslununum er tekið á móti greiðslum í þremur gjaldmiðlum þ.e. krónum, evrum og dollurum. Þannig geta viðskiptavinir á helstu markaðssvæðum fyrirtækisins stundað viðskipti í gjaldmiðlum sem þeir þekkja.
Til að einfalda rekstur verslunanna eru þær að hluta tengdar miðlægu Axapta vöru- og viðskiptakerfi sem 66° Norður rekur.
Outcome sá um uppsetningu á vefunum og verslununum, og aðlögun á hönnuninni sem unnin var af Jónsson & Le´Macks. Fyrirtækin Libius og Monaco Technology Solutions komu að verkefnastýringu f.h. verkkaupa.
Ánægjulegt er að greina frá því að viðskipti í gegnum vefverslanirnar hafa farið vel af stað.
Vörumerkið 66° Norður hefur að undanförnu fengið jákvæða athygli í allmörgum erlendum fjölmiðlum. Fjallað er með lofsamlegum hætti um framleiðslu fyrirtækisins í nýjustu heftum tímaritanna GQ og SKI Magazine.
Nýju vefirnir eru í takt við starfsemi 66° Norður auk þess að styrkja ímynd þeirra og vörumerki.
Smelltu hér til að fræðast nánar um vefverslanir Outcome.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Við gefum þeim okkar bestu meðmæli"
Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir
Attentus









