Fréttir
27. nóvember 2006
Effie auglýsingaverðlaunin - Outcome kannanakerfinu beitt
Síðastliðinn föstudag afhent iðnaðar- og viðskiptaráðherra Effie verðlaunin 2006. Verðlaunin eru á vegum SÍA ( Sambandi íslenskra auglýsingastofa) og eru veitt fyrir bestu innsendu auglýsingaherferðina. Matið á gæðum auglýsingaherferða var hvortveggja sjónrænt og einnig vóg árangur herferðanna þungt. Það var í höndum dómnefndar að meta herferðirnar, en í dómnefndinni sátu bæði fulltrúar auglýsingstofa og atvinnulífs.
Til að gera framkvæmd keppninnar hvortveggja markvissa og einfalda var farin sú leið að nýta rafræna tæki eftir megni. Outcome hugbúnaður sá um að setja upp sérstök innsendingarform fyrir keppendur og því skiluðu auglýsingastofur sínum gögnum og greinagerðum með rafrænum hætti. Í framhaldinu voru þessi gögn sett upp þannig að þegar að störfum dómnefndar kom, gátu dómarar sest niður fyrir framan tölvuskjá og farið yfir gögn hverrar herferðar og gefið einkunnir.
Framkvæmdin öll gekk mjög vel og almenn ánægja var með hana. Sautján innsendingar bárust en á bakvið hverja innsendingu var mikil vinna enda krafan um skýrar upplýsingar um árangur rík. Outcome þakkar SÍA gott samstarf í þessu verkefni þar sem kannanakerfið var nýtt með nýjum og árangursríkum hætti.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Við gefum þeim okkar bestu meðmæli"
Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir
Attentus
Leit









