Fréttir
28. desember 2006
LSH hefur afnot af Outcome vefkannanakerfinu
Landspítali - háskólasjúkrahús hefur samið við Outcome ehf. um afnot af Outcome vefkannanakerfinu fyrir svið og skrifstofur spítalans. Gerðar eru kannanir með kerfinu á hraðvirkan, einfaldan en faglegan hátt. Notandi útbýr kannanir og sendir til svarenda í tölvupósti eða birtir þær á vefsvæði sínu. Niðurstöður birtast á myndrænu formi jafnskjótt og þær berast þannig að notendur geta fylgst með þróun svara í rauntíma. Outcome ehf. tryggir að öll svör séu órekjanleg og að í öllu sé farið eftir reglum Persónuverndar um öflun og meðferð persónuupplýsinga. Hægt er að hafa spurningalista á pappírsformi og slá síðan niðurstöður inn í Outcome.
Viðhorfskannanir eru mjög mikilvægur liður í framkvæmd og eftirfylgni stefnumótunar LSH. Því er sjúkrahúsinu nauðsynlegt að kynnast viðhorfum hinna ýmsu hópa, s.s. sjúklinga, aðstandenda, nemenda, birgja og starfsmanna. Það er mikilvægt innlegg í umbótaferli á framsækinni stofnun eins og LSH. Þannig verður þjónustan sífellt betri og markvissari, starfsemin öruggari og skilvirkari og starfsmenn ánægðari. Árangursmælingar, sem byggja á viðhorfum varðandi öryggi, er að finna í öllum skorkortum LSH, jafnt heildarskorkorti spítalans sem skorkortum sviða, deilda og annarra eininga.
Yfirumsjón með Outcome innan LSH hefur skrifstofa kennslu, vísinda og þróunar og þangað geta svið og skrifstofur leitað eftir aðstoð. Í upphafi nýs árs mun skrifstofan gefa út verklagsreglur í gæðahandbók sinni um aðgang og notkun á Outcome.

Eygló Ingadóttir, verkefnastjóri hjá skrifstofu kennslu vísinda og þróunar og umsjónarmaður Outcome vefkannanakerfisins hjá LSH, Art Schalk sölustjóri Outcome hugbúnaðar ehf, Kristín Kalmansdóttir verkefnastjóri hjá deild gæðamála og innri endurskoðunar, sem vann þarfagreiningu fyrir vefkannanakerfi fyrir LSH og leiddi samningaviðræður við Outcome hugbúnað ehf. fyrir hönd LSH og Kristján Erlendsson framkvæmdastjóri kennslu vísinda og þróunar.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Sanngjarnir í verði og veita röska og trausta þjónustu"
Páll Vilhjálmsson
Rannís









