Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

1. febrúar 2007

Kópavogsbær innleiðir Outcome vefkannanakerfið

Fyrir skömmu var undirritaður samningur Kópavogsbæjar við Outcome hugbúnað ehf. sem hefur þróað og markaðssett Outcome vefkannanakerfi.

Með samningnum fær Kópavogsbær aðgang að Outcome kannanakerfinu sem gerir bænum kleift að framkvæma viðhorfs- og þjónustukannanir í gegnum tölvupóst og internetið.  

undirskrift-kopavogur

Kópavogsbær mun í framtíðinni framkvæma rafrænar kannanir með kannanakerfi Outcome til að afla upplýsinga um viðhorf íbúa með það að markmiði að bæta þjónustu við bæjarbúa. Kerfið mun einnig verða notað við framkvæmd kannana sem lúta að innra starfi bæjarins, t.d. skólamatskannana í 26 skólum Kópavogs og ýmissa kannana sem varða starf leikskóla.

Sigurður Björnsson, markaðsstjóri Kópavogsbæjar segir kerfið gera bæjaryfirvöldum kleift að framkvæma margar þjónustukannanir á einfaldan hátt með litlum tilkostnaði. Niðurstöður liggi strax fyrir í rafrænni skýrslu. Rafrænar kannanir bæti lýðræðisleg vinnubrögð og séu til mikilla þæginda vegna þess að allir geta svarað á einfaldan hátt.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Við getum hiklaust mælt með Outcome"

Felix Gylfason
66°Norður


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome fréttabréfakerfi - betri samskipti við viðskiptavini