Fréttir
16. febrúar 2007
Pourquoi pas - Franskt vor á Íslandi
Fyrir nokkru var vefur menningarhátíðarinnar Pourquoi pas? - Franskt vor á Íslandi opnaður. Þessi hátíð er um margt sérstök en hún stendur fram til 12. maí. Hátíðin er sett upp að frumkvæði Frakka og sendiherra þeirra hér á landi hefur verið einn aðal hvatamaður þessarar hátíðar.
Í gær kynntu Nicole Michelangeli og Þorgerður Katrín, menntamálaráðherra, dagskrá hátíðarinnar. Á þessu þriggja mánaða tímabili er snert á bókmenntum, kvikmyndum, tónlist, vísindum og fleiru. Spennandi viðburður sem eflir vitund um franska menningu.
Vefur hátíðarinnar var hannaður af fyrirtækinu Gagarín og settur upp á Outcome vefstjórann. Rekstur vefsins er í höndum aðstandenda hátíðarinnar.
Á honum er að finna almenna kynningu á hátíðinni, en einnig er þar viðburðadagatal sem kemur dagskrá hennar vel á framfæri og styður þannig við alla aðra kynningu.
Slóðin er www.fransktvor.is

Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Verð, þjónustulund og fagmennska til stakrar fyrirmyndar"
Jóhannes Ingi Davíðsson
Framkvæmdarstjóri IMARK









