Fréttir
4. apríl 2007
Auglýsingakeppnir á Íslandi og í Færeyjum
Fyrir nokkru afhenti ÍMARK íslensku auglýsingaverðlaunin. Þessi verðlaun eru veitt árlega fyrir bestu auglýsingar ársins. Sem fyrr sá Outcome hugbúnaður um framkvæmd keppninnar sjálfrar en sérsmíðaðri útgáfu af Outcome kannanakerfinu þar sem bæði er hugað að innsendingu gagnan og umsýslu með dómnefndarstörfum. Keppnin fór vel fram oog niðurstöður voru kynntar á markaðsdeginum sem haldinn var þann 2. mars.
Eftir íslenska markaðsdaginn tók við undirbúningur og framkvæmd KOLAN keppninnar sem er færeysk auglýsingakeppni. Þetta var fyrsta skipti sem keppni er haldin með því sniði í Færeyjum en þar beittu menn Outcome kerfinu í ferlinu frá innsendingu gagna til atkvæðagreiðslu eins og ÍMARK hefur gert. Dómnefndarmenn sátu í Færeyjum og á Íslandi og öll framkvæmd gekk vel fyrir sig. Niðurstöður KOLAN keppninnar verða kynntar í lok apríl.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Góð og lipur þjónusta á sanngjörnu verði"
Margrét Sveinbjörnsdóttir,
AP almannatengsl









