Fréttir
28. mars 2007
Hönnunarvettvangur opnar upplýsingavef um íslenska hönnun
Hönnunarvettvangur var settur á stofn í maí 2005. Hlutverk vettvangsins er að kynna og efla alla íslenska hönnun og koma á öflugu neti samstarfsaðila í verkefnum þar sem nýsköpun og samkeppnishæfni í íslensku atvinnulífi er höfð að leiðarljósi.
Hönnunarvettvangur hefur rekið vef hjá Outcome hugbúnaði um nokkra hríð, en fyrir nokkru var farið út í að endurvinna vefinn og markmiðiið var að gera hann að öflugu tæki sem nýttist hönnuðum til að koma sér og hönnun sinni betur á framfæri en áður.
Núverandi vefur er afsprengi þessarar vinnu og hann er í senn skemmtilega hannaður og gefur hönnuðum færi á að koma sér og verkum sínum á framfæri. Nú geta hönnuðir sem sækja um aðgang hjá Hönnunarvettvangi sjálfir hlaðið upp sínum upplýsingum til birtingar og einnig fengið aðgang að sínum kynningarsvæðum til að breyta þeim upplýsingum sem þar eru fyrir. Verkið er enn í nokkurri mótun en hægt er að skoða vefinn og þar með kynningu á hönnuðum á slóðinni www.honnunarvettvangur.is
Greiningarvinna og upplýsingahönnun var í höndum SJÁ og útlitshönnun fór fram hjá Gagarín. Kerfið á bakvið vefinn er Vefstjórinn 4.8 og sérforitunin var í höndum Outcome manna.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Lipurt og hjálpsamt starfsfólk"
Sigrún Ingimarsdóttir
Verkefnastjóri - LSH
Leit









