Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

6. september 2007

360° stjórnendamat vinsælt í haust

Á síðustu árum hefur vilji til ýmiskonar mælinga í atvinnurekstri aukist og þá er ekki síður horft til þátta sem ekki er hægt að lesa út úr hefðbundnu fjárhagsbókhaldi. Á okkar tímum er þekking og færni lykill árangurs. Stjórnendur eru í lykilhlutverkum sem leiðtogar sem taka lykilákvarðanir um hvert skuli stefnt og hvernig farsælast sé að framkvæma hlutina. Einnig eru þeir þjálfarar og foringjar árangursríkra liðsheilda.

Það hvernig þeir standa sig í sínum hópi skiptir því miklu máli og  mörg framsækin fyrirtæki hafa hafið notkun á 360° stjórnendamati. Flest “Fortune 500” fyrirtæki nýta aðferðina og hafa sum náð afburða árangri í uppbyggingu og starfsþróun stjórnenda. Á Íslandi hafa nokkur fyrirtæki nýtt sér þessa aðferðafræði, en nú er einfaldara og ódýrara en áður að framkvæma 360° stjórnendamat. Upplýsingatæknin nýtist vel og í dag eru rafrænar kannanir grunnur að markvissri upplýsingaöflun og úrvinnslu sem er lykill að stjórnendamatinu.

Grunnhugmyndin

Grunnhugmyndin 360° matsins er að auka sjálfsþekkingu stjórnenda og að mat starfsmanna jákvætt eða neikvætt komist til skila. Þetta leiðir til sterkari stjórnenda, en lykillinn að því er að þeir þekki sínar veiku og sterku hliðar. Fyrirtækjamenningin verðu opnari og hugsanleg spenna vegna ágreinings minnkar. Stefnumótandi ákvarðanataka batnar sem og viðbrögð fyrirtækisins við innri- og ytri málum sem taka þarf á. Þetta leiðir svo til þess að  kjarnafærni fyrirtækisins og samkeppnisforskot  nýtist betur.  Traust til stjórnenda eykst. Samskipti verða betri, bæði innri sem og þau ytri. Þetta leiðir svo til aukinnar ánægja viðskiptavina og þar með sterkari stöðu.

Stjórnendamat Outcome

Stjórnendamatsgrunnurinn sem  Outcome byggir á ákveðinn fjölda lykilspurninga sem flokkaðar eru í tengslum við gildismat og leiðtogahæfni stjórnenda. Viðkomandi stjórnandi er metinn eftir persónulegum eiginleikum og hegðun sem endurspeglar styrk hans og veikleika. 

Byggt á þeim upplýsingum sem fólk í umhverfi hvers stjórnanda og hann sjálfur veita er gerð samantektarskýrsla fyrir hans persónu. Þar kemur fram samanburður á sjálfsmati hans og svo því hvernig samferðafólk hans metur hann á sömu sviðum. Niðurstöður matsins eru svo leiðbeinandi fyrir hann og þá sem sinna starfsþróunarmálum.

Outcome kannanakerfið gerir  matsvinnuna einfalda og þægilega. Unnið hefur verið að þróun framkvæmdar  360° stjórnendamatsins  með íslenskum fyrirtækjum og matsaðferðin aðlöguð þeim aðstæðum sem þau búa við hvert fyrir sig.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Við gefum þeim okkar bestu meðmæli"

Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir
Attentus


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome fréttabréfakerfi - betri samskipti við viðskiptavini