Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

21. september 2007

Outcome smíðar Leiðakerfi neytenda

Talsmaður neytenda og Outcome hugbúnaður gerðu nýverið með sér samning um smíði Leiðakerfis neytenda. Um er að ræða smíði á veflægum hugbúnaði sem leiðir neytendur að tiltækum upplýsingum um réttindi sín, auðveldar framsetningu kvartanna til söluaðila ef ástæða þykir til og leitun til kvörtunarnefnda eða annarra sem leysa úr ágreiningsmálum neytenda þegar annarra kosta er ekki völ.

Öll uppbygging kerfisins miðar að því að neytendur sem ekki þekkja sérstaklega til neytendaverndar geti metið stöðu sína og fylgt málum eftir þar sem það á við. Hér er um að ræða eitt kerfi sem leysir af hólmi flókna og tímafreka vinnu sem neytendur hafa þurft að leggast í til að leita réttar síns.

Outcome hugbúnaður vinnur nú að upplýsingahönnun kerfisins í samráði við verkefnastjóra verkefnisins, Liselotte Widing. Nú á haustmánuðum verður kerfið forritað og prófað og markmiðið er að í byrjun næsta árs verði það tekið í notkun.

Það er okkur heiður að fá að taka þátt í þessu spennandi verkefni sem verður að teljast framsækið og gagnsemi þessi fyrir neytendur getur orðið veruleg.

Talsmaður neytenda
Gísli Tryggvason talsmaður neytenda, Þórður
Höskuldsson framkvæmdastjóri Outcome hugbúnaðar
og Liselotte Widing verkefnastjóri handsala
samninginn um smíði Leiðakerfis neytenda.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Þjónusta sem Outcome veitir er framúrskarandi"

Heiðar Kristinsson
Sölu- og markaðsstjóri, Tölvumiðlun hf


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome fréttabréfakerfi - betri samskipti við viðskiptavini