Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

3. október 2007

Reykjavíkurborg endurnýjar samning um notkun á Outcome vefkannanakerfinu

Reykjavíkurborg og Outcome hugbúnaður hafa í dag endurnýjað samning um notkun borgarinnar og stofnanna hennar á Outcome kannanakerfinu. Kerfið hefur verið í notkun hjá borginni allt frá árinu 2002 og byggt á fenginni reynslu hefur samningurinn verið endurnýjaður.

Samningurinn var undirritaður af Álfheiði Eymarsdóttur, þjónustustjóra Reykjavíkurborgar, og Art Schalk fyrir hönd Outcome hugbúnaðar.

Frá því að Outcome kannanakerfið var tekið í notkun hjá Reykjavíkurborg hefur fjöldi notenda aukist jafnt og þétt og kannanakerfið er nýtt reglulega til framkvæmdar minni og stærri kannana hjá einstaka deildum og sviðum. Kerfið er einnig lykilþáttur í  umfangsmiklum starfsánægjukönnunum sem reglulega eru framkvæmdar hjá Reykjavíkurborg og nýtist í samhæfðu árangursmati (BSC) sem Reykjavíkurborg hefur unnið með síðustu ár. 

Að mati Álfheiðar skapar kerfið borginni hagkvæmt og gott verkfæri til skipulegri og betri mælinga á frammistöðu sinni gagnvart íbúum, fyrirtækjum og starfsfólki. Borgin og starfsfólk hennar leggur mikið upp úr því að sinna sínum verkum vel og standa sig. Lykillinn að því er að þekkja stöðuna á hverjum tíma og geta þar með brugðist við og mótað hvert skuli stefnt.

Frá því að kannanakerfið var tekið í notkun hafa verið gerðar ýmsar tilraunir með nýtingu þessarar tækni og frá því í sumar hefur borgin gert þjónustukannanir í sundlaugum borgarinnar. Sérstakur Outcome tölvustandur hefur verið nýttur í þessum tilgangi og hefur hann skilað töluverðum upplýsingum um ánægju og þarfir sundlaugagesta. Standurinn kemur í stað tímabundinna starfsmanna sem áður sinntu þessari söfnun upplýsinga og öll úrvinnsla gagna er mun einfaldari en áður.  

Notkun Outcome kannanakerfisins skapar möguleika á virkara þjónustumati hjá stofnunum og fyrirtækjum borgarinnar ásamt því að draga verulega úr kostnaði við upplýsingaöflunina.

Art og Álfheiður
Art Schalk og Andrea Ósk Jónsdóttir, verkefnisstjóri
Þjónustu- og rekstrarsviðs ánægð með undirskriftina.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit