Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

25. mars 2008

Rafræn neytendahjálp með Leiðakerfi neytenda

Nýlega opnaði Gísli Tryggvason, Talsmaður neytenda, ásamt viðskiptaráðherra Björgvini G. Sigurðssyni nýtt vefkerfi sem bætir upplýsingagjöf um neytendarétt. Um er að ræða kerfi sem leiðir notandann að niðurstöðu um sinn rétt og hjálpar til við að ná fram úrlausn. 

Leiðakerfi neytenda er sameiginleg vefgátt fyrir allar tegundir neytendamála, óháð því hvaða stofnun eða samtök fara með málaflokkinn. Frá þeirri vefgátt geta neytendur nálgast upplýsingar og kannað rétt sinn, fengið aðstoð við að bera fram kvartanir og skjóta málinu, þegar við á, til úrlausnar hjá kvörtunarnefndum eða öðrum úrlausnaraðilum – óháð stað og tíma sólarhrings!

Vefgáttin Leiðakerfi neytenda er byggð upp sem „smellikerfi“ til þess að takmarka þann texta sem neytandi þarf að lesa til að finna rétta leið eða nauðsynlegar upplýsingar. Neytandinn velur því málaflokk og heldur áfram í kerfinu með því að smella á valkosti þangað til hann hefur fengið þá aðstoð sem hann sóttist eftir.

Leiðakerfi neytenda

www.neytandi.is


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Kynntu þér Outcome kannanakerfið