Fréttir
20. maí 2008
Námskeiðskerfi - Aukin gagnvirkni í vefum SFR og STRV
Nú nýverið tóku stéttarfélögin SFR og STRV upp nýtt skráningar og umsýslukerfi fyrir námskeið sem þau standa fyrir. Um er að ræða veflægt kerfi sem tekur við öllum námskeiðsskráningum, heldur utan um þær og skapar samskiptavettvang við þá sem hafa skráð sig.
Með kerfinu geta þátttakendur lagt mat á námskeiðið í gegnum rafrænt form og loks sér kerfið um að útbúa skjal sem staðfestir þátttöku viðkomandi á tilteknu námskeiði.
Ávinningur af notkun forma af þessu tagi er töluverður því mjög dregur úr álagi vegna skráninga og utanumhalds um námskeið. Upplýsingastreymi til þátttakenda er betra en áður og mat á gæðum námskeiða liggur fyrir strax í kjölfar þeirra.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Þjónusta sem Outcome veitir er framúrskarandi"
Heiðar Kristinsson
Sölu- og markaðsstjóri, Tölvumiðlun hf









