Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

5. júlí 2008

Rafrænar atkvæðagreiðslur um kjarasamninga

Frá því í maí hafa farið fram atkvæðagreiðslur um kjarasamninga nokkura stéttafélaga og viðsemjenda þeirra. Nýbreytnin er sú að nú nota stéttafélögin upplýsingatæknina í atkvæðagreiðslum. Kjörseðlar eru rafrænir og félagsmenn geta greitt atkvæði með hvaða nettengdu tölvu sem er. Hagræðið af þessari aðferð er margþætt. Öll framkvæmd er einfaldari og ódýrari, skil atkvæða fara nú fram um tölvu en ekki í formi hefðbundinna atkvæðaseðla og kosningakerfi Outcome sjá um að halda utan um gögn og birta niðurstöður um leið og atkvæðagreiðslu lýkur.

Stéttarfélag í almannþjónustu, SFR reið á vaðið en nú hafa starfsmenn Stjórnarráðsins, sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar, flugumferðarstjórar ofl. nýtt sér Outcome kosningakerfið í sínum atkvæðagreiðslum sem bæði hafa snúist um eiginlega kjarasamninga og kosningar um aðgerðir í kjarabaráttu.  

Fullyrða má að dregið hafi verulega úr vinnu og kostnaði við framkvæmd atkvæðagreiðslna og kjörþáttaka er almennt góð í rafrænum atkvæðagreiðslum og dæmi um það er 83% þátttaka í atkvæðagreiðslu um kjarasamning flugumferðastjóra.

Nánari upplýsingar um rafrænar kosningar


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Tímaáætlanir standast og starfsmenn veita gagnlegar ábendingar"

Hag og upplýsingasvið
Sambands íslenskra sveitarfélaga


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Kynntu þér Outcome kannanakerfið