Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

14. júlí 2008

Könnun á meðal aðildarfélaga Samtaka atvinnulífsins - ráðningar og rekstrarumhverfi

Í liðinni viku framkvæmdu Samtök atvinnulífsins (SA) könnun á meðal aðildarfélaga. Markmið könnunarinnar var að fá raunmynd af stöðu og horfum í íslensku atvinnulífi.

Niðurstöður yfirfærðar á atvinnulífið í heild

Fyrirtækin í könnuninni endurspegla sjávarútveg, iðnað, byggingarstarfsemi, veitur, verslun og samgöngur, hótel og veitingahús, fjármála- og tryggingafyrirtæki. Í þessum atvinnugreinum störfuðu 92.500 manns á síðasta ári og námu launagreiðslur til þeirra rúmlega 470 milljörðum króna. Hjá þeim fyrirtækjum í könnuninni sem þegar hafa fjölgað starfsmönnum eða áforma það nemur fjölgunin 4% af starfsmannafjölda en þegar framkvæmd eða áformuð fækkun nemur 6,7%. Nettófækkun starfsmanna á árinu er því 2,7%. Þessi hlutfallstala, 2,7%, svarar til þess að störfum muni fækka um tæplega 2.500 í þessum atvinnugreinum á árinu. Launagreiðslur sem brott falla af þeim sökum nema rúmlega 13 milljörðum króna eða sem nemur 1% af vergri landsframleiðslu.

Um könnunina:

Könnunin var tölvupóstkönnun og var send til 1699 fyrirtækja en fjöldi svarenda var 592. Svarhlutfall var því 34,84%. Lang flestir svarenda (81%) voru með undir 50 starfsmenn í vinnu. Flestir þeirra (32%)  með 5 starfsmenn eða færri. Fimmtán svarenda störfuðu hjá fyrirtæki með yfir 500 starfsmenn í vinnu.

 Ítarlegri upplýsingar um könnunina og niðurstöður hennar má finna hér


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Fagmennska fyrsta flokks!"

Árni Steinar Stefánsson
Eures


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Kynntu þér Outcome kannanakerfið