Fréttir
11. ágúst 2008
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar greiða atkvæði rafrænt
Nú í byrjun vikunnar hófst atkvæðagreiðsla um verkfall Ljósmæðra. Ljósmæðrafélag Íslands leggur í dóm félagsmanna hvort verkfallsleiðin skuli farin í kjarabaráttu þeirra. Hér kemur kosningakerfi Outcome að notum og félagsmenn Ljósmæðrafélagsins greiða atkvæði á sérstöku lokuðu og lykilorðavörðu svæði þar sem hver félagsmaður getur greitt atkvæði einu sinni með sérstökum lykli sem sendur var bréfleiðis.
Fyrir skömmu tóku félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga afstöðu til yfirvinnubanns með sama hætti og þar voru heimtur atkvæða góðar og niðurstaða atkvæðagreiðslunnar afgerandi.
Að nýta rafræn kosningakerfi við aðstæður sem þessar, auðveldar alla framkvæmd og dregur úr kostnaði við fjölmenna atkvæðagreiðslu á sama tíma og þátttaka félagsmanna eykst. Tölvutæknin hefur ekki verið þröskuldur í þessum tilfellum og allur almenningur fær um að taka þátt. Því má ætla að rafræn kosningakerfi séu ekki eingöngu fjárhagslega hagstæð heldur einnig leiði þau til aukins lýðræðis í ákvarðanatöku.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Lipurt og hjálpsamt starfsfólk"
Sigrún Ingimarsdóttir
Verkefnastjóri - LSH
Leit









