Fréttir
5. september 2008
Atkvæðagreiðsla um samruna SPRON og Kaupþings
Nýverið nýtti SPRON sér Outcome kosningakerfið við atkvæðagreiðslu um samruna SPRON og Kaupþings. Atkvæðagreiðslan gekk fljótt og örugglega fyrir sig og öll framkvæmd var til fyrirmyndar. Fyllsta öryggis var gætt og niðurstöður úr atkvæðagreiðslunni lágu strax fyrir eftir að henni lauk.
Tillagan sem var lögð fyrir hluthafafund í SPRON þann 6. ágúst 2008 varðandi fyrirhugaðan samruna SPRON og Kaupþings var samþykkt með 78,78% atkvæða. Samruninn er háður samþykki Fjármálaeftirlitsins og háður því að samkeppnisyfirvöld ógildi hann ekki eða setji honum skilyrði sem stjórnir félaganna telja óviðunandi eða leiði til þess að óhjákvæmilegt sé að leggja ákvörðun um samrunann að nýju fyrir hluthafafund í SPRON. Samþykkis lánveitenda vegna samrunans hefur þegar verið aflað.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna má finna hér. http://spron.is/
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Tímaáætlanir standast og starfsmenn veita gagnlegar ábendingar"
Hag og upplýsingasvið
Sambands íslenskra sveitarfélaga









