Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

11. september 2008

Atvinnumál kvenna - Nýr vefur

Í byrjun september kynnti Vinnumálastofnun styrki til átaks í atvinnumálum kvenna. Félagsmálaráðuneytið og Vinnumálastofnun veita 50 milljónum í styrki sem renna til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir. Um er að ræða mun hærri upphæð en áður hefur verið sett í átak af þessu tagi og nú settur aukinn kraftur í kynningu og öll umgjörð verkefnisins er umfangsmeiri en áður. Vægi vefsíðu sem sett hefur verið upp í tengslum við verkefnið er töluvert. Í því samhengi má segja frá því að

  • Vefsíðunni er ætlað að kynna styrkina og þær reglur sem gilda um úthlutun þeirra
  • Á vefsíðunni er fullkomið rafrænt form þar sem hægt er að skrá styrkumsóknir með fylgigögnum.
  • Vefnum er einnig ætlað að veita frumkvöðlum stuðning með fræðslu og upplýsingum
  • Loks er horft til þess að skapa fjölþætt netsamfélag sem konur geta stutt við hvor aðra með margvíslegum hætti í þeim verkefnum sem tekist er á við hverju sinni.

Hönnun vefsins var í höndum Orra Guðjónssonar og starfsmenn Outcome hugbúnaðar sáu um alla forritun og uppsetningu.

Atvinnumál kvenna

www.atvinnumalkvenna.is


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit