Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

19. september 2008

Ljósmæður samþykkja miðlunartillögu í rafrænni kosningu

Ljósmæðrafélagið nýtti sér Outcome kosningakerfið til að kjósa um miðlunartillögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu þeirra og fjármálaráðherra.

Kosningin gekk greiðlega fyrir sig og niðurstöður lágu fyrir strax að kosningu lokinni. Alls greiddi 191 ljósmóðir, eða 82,68 % félagsmanna, atkvæði um tillöguna og vildu 162 samþykkja hana, 22 höfnuðu og 7 skiluðu auðu.

Miðlunartillagan hljóðar svo að núgildandi kjarasamningur Ljósmæðrafélagsins er framlengdur frá 1. ágúst  til 31. mars 2009. Grunnlaun ljósmæðra hækka um allt að 22,6% á mánuði, þar af koma um 5% í stofnanasamningum, og að jafnaði hækka mánaðarlaun þeirra um 70-90 þúsund krónur á mánuði. Að auki verður Vísindasjóður ljósmæðra lagður af en í hann hafa vinnuveitendur greitt 1,5% af launum.

Nánari upplýsingar um rafrænar kosningar


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Lipurt og hjálpsamt starfsfólk"

Sigrún Ingimarsdóttir
Verkefnastjóri - LSH


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit