Fréttir
2. október 2008
Atvinnumál kvenna - 250 umsóknir bárust
Fyrir um mánuði opnaði vefurinn www.atvinnumalkvenna.is. Í septembermánuði gátu konur sótt um styrki til frumkvöðlastarfs og atvinnuuppbyggingar. Áhuginn var mikill og um 250 umsóknir bárust. Öllum umsóknum var skilað inn í gegnum rafrænt umsóknareyðublað sem gerði umsækjendum mögulegt að vinna fjölþættar umsóknir og verkefnalýsingar beint á vefnum. Gögnin eru nú öll til á veflægu formi sem auðveldar alla umgengni og úrvinnslu þegar að því kemur að meta hvaða umsóknir skuli fá brautargengi.
Almennt má segja að skil umsókna og verkefnalýsinga hafi gengið vel fyrir sig og því sýnt að beiting upplýsingatækni með þessum hætti er vel fær, enda leiðir hún til hagkvæmari og betri samskipta og öll úrvinnsla verður auðveldari fyrir þá sem að málum koma.
Vefurinn og rafræn eyðublöð byggja á Outcome Vefstjóranum.

Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.









