Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

4. október 2008

Lýðræðisleg stefnumótun - Outcome kannanir

Stefnumótun er unnin reglulega í mörgum fyrirtækjum og félagasamtökum. Með stefnumótuninni fara stjórnendur og leiðtogar yfir það hvernig kúrsinn hefur verið og það hvert skuli haldið. Leiðarljós í þessu geta verið margvísleg. Oft eru það fjárhagsleg markmið til lengri eða skemmri tíma en einnig er horft til þjónustu og félagslegra markmiða sem uppfylla skal. Byggt á þessu er oftar en ekki byrjað á því að horfa á stöðuna eins og hún er og svo er mörkuð stefna til framtíðar sem tengist þá árangursmarkmiðum þeirra sem eiga í hlut.

Nýverið leitaði Orlofssjóður BHM til félagsmanna sinna í þeim tilgangi að fá hinn almenna félagsmann til að leggja fram upplýsingar um reynslu og vilja til framtíðar. Hvernig hefur þeim líkað þjónusta sjóðsins fram að þessu og hvert skal stefnt. Í vefkönnun sem framkvæmd var af Outcome hugbúnaði fengust á þriðja þúsund svör félagsmanna en þau gögn eru stjórnendum sjóðsins mikilvægt veganesti í mótun stefnu hans sem fram fer nú á haustmánuðum.

Það að hægt sé að leita til fjöldans eftir afstöðu skapar stjórnendum sterkan stefnugrunn til að byggja á. Hér fær lýðræðið að njóta sín og rödd hins almenna félaga fær að hljóma. Tengsl þeirra sem eru í brúnni við félagsmenn týnast ekki og mikilvægar ákvarðanir byggja á rödd fjöldans.

Með einföldum og hagkvæmum hætti geta fyrirtæki og félög nýtt sér vefkannanir í þessum tilgangi og auðvelt er að fá fram viðhorf til þess sem liðið er og þess sem framundan er. Með upplýsingar af þessu tagi í farteskinu er auðvelt að greina lykilþætti og stjórnendur hafa fast land undir fótum í mótun markvissrar stefnu.

Viðhorfskönnun Orlofssjóðs BHM


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Greiðvirk og frábær þjónusta"

Elísabet Hjaltadóttir
Actavis Group hf


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome vefstjóri vandaðir vefir byggðir á öflugu en einföldu vefumsjónarkerfi