Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

16. desember 2008

Outcome könnun - Skiptar skoðanir innan SA um ESB og evru

Outcome kannanakerfið var nýtt til að kanna afstöðu aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins til aðildar að ESB og upptöku evru. Könnunin náði til allra aðildarfélaga SA og leiddi í ljós að skoðanir eru skiptar um þessi mál.

Niðurstöður skoðanakönnunar meðal aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins um afstöðu þeirra til þess hvort samtökin eigi að beita sér fyrir aðild að ESB og upptöku evru liggja nú fyrir. Niðurstöðurnar voru kynntar á fundi stjórnar SA í dag. Meirihluti er í fimm aðildarsamtökum SA fyrir því að SA beiti sér fyrir aðild að ESB og upptöku evru en meirihluti í þremur er því andvígur. Skoðanir eru mjög skiptar í þessu máli innan samtakanna og á grundvelli niðurstaðna könnunarinnar er staðfest að SA muni ekki beita sér fyrir aðild Íslands að ESB og upptöku evru á Íslandi. SA verða áfram virkur þátttakandi í Evrópuumræðunni og munu gæta hagsmuna allra félagsmanna á grundvelli þess að skoðanir eru skiptar um hvort sækja eigi um aðild að ESB eða ekki.

Sjá nánar á vef SA:  http://www.sa.is/frettir/almennar/nr/4347/


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Kynntu þér Outcome kannanakerfið