Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

5. janúar 2009

Íslensku auglýsingaverðlaunin – Outcome sér um framkvæmd í fimmta sinn

ÍMARK, félag íslensks markaðsfólks, í samráði við Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA), efnir í tuttugasta og annað sinn til auglýsingasamkeppni sem heitir Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin. Outcome sér um framkvæmd og úrvinnslu á keppninni fyrir árið 2008 en þetta er í fimmta árið sem ÍMARK er í samstarfi með Outcome vegna þessa.

Í dag 6. janúar var opnað fyrir innsendingar en skilafrestur er til 17. janúar. Keppnin er opinn öllum sem stunda gerð eða dreifingu auglýsinga á Íslandi en skilyrði fyrir þátttöku eru að auglýsingin sé íslensk eða gerð sérstaklega fyrir íslenskan markað og hafi birst í fyrsta sinn á árinu 2008.

Tekið er á móti innsendingum á sérstöku vefsvæði Outcome sem sett hefur verið upp fyrir keppnina, Þátttakendum verður úthlutað lykilorði að vefsvæðinu eftir að greitt hefur verið fyrir innsendingarnar. Nánari upplýsingar má finna á vef www.imark.is eða með því að hafa samband við starfsmenn ÍMARK í síma 511 4888 eða í netfanginu imark@imark.is

ÞÁTTTÖKUREGLUR er hægt að nálgast hér til hægri undir Þátttökureglur 2008.

Veitt verða verðlaun í eftirtöldum flokkum:

  • Sjónvarpsauglýsingar
  • Útvarpsauglýsingar
  • Dagblaðaauglýsingar
  • Tímaritaauglýsingar
  • Vöru- og firmamerki
  • Umhverfisgrafík
  • Veggspjöld
  • Auglýsingaherferðir
  • Markpóstur
  • Viðburðir (event)
  • Vefborðar
  • Opinn flokkur
  • Almannaheillaauglýsingar
    • auglýsingar í ljósvakamiðlum (sjónvarps- og útvarpsauglýsingar) 
    • auglýsingar í prentmiðlum/öðrum miðlum

Dómnefnd er  skipuð 21 aðila frá ÍMARK, SÍA, FÍT, Orðspori og Félagi kvikmyndagerðarmanna. Dómnefndin fer yfir allar innsendingar í tölvu, í tveimur umferðum. Í fyrri umferð er hverri innsendingu gefið stig, og í seinni umferð eru 5 bestu auglýsingarnar valdar. Úrslit verða svo kynnt á ÍMARK deginum í byrjun febrúar.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Við gefum þeim okkar bestu meðmæli"

Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir
Attentus


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome fréttabréfakerfi - betri samskipti við viðskiptavini