Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

4. janúar 2009

Fleiri rafrænar atkvæðagreiðslur um kjarasamninga hjá BHM

Fjögur aðildarfélög hjá Bandalagi Háskólamanna (BHM) greiddu rafrænt atkvæði um nýgerðan kjarasamning við Reykjavíkurborg og launanefnd sveitarfélaga um miðjan desember. Þar fylgdu þau fordæmi fimm annarra aðildarfélaga sem greiddu atkvæði með þessum hætti í fyrri hluta desembermánaðar.

Eftirfarandi félög greiddu nú atkvæði:

  • Félagsráðgjafafélag Íslands - um samninga við Reykjavíkurborg og launanefnd sveitarfélaga
  • Iðjuþjálfafélag Íslands - um samning við launanefnd sveitarfélaga
  • Sálfræðingafélag Íslands - um samninga við Reykjavíkurborg og launanefnd sveitarfélaga
  • Þroskaþjálfafélag Íslands - um samning við Reykjavíkurborg

Um var að ræða atkvæðagreiðslu senda með tölvupósti en alls voru um 550 aðilar á kjörskrá. Þátttakan var mjög góð eða allt upp í 78% í einstaka félagi og að meðaltali yfir 60%. Niðurstöður voru afgerandi og var kjarasamningurinn samþykktur með afgerandi hætti í öllum félögunum.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Kynntu þér Outcome kannanakerfið