Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

20. janúar 2009

Viðskiptaráðið endurnýjar vefinn sinn í samstarfi við Outcome hugbúnað

Í desember síðastliðnum endurnýjaði Viðskiptaráð Íslands vefinn sinn og setti hann í framsæknari og aðgengilegri búning. Vefurinn er settur upp á Outcome vefstjóranum líkt og fyrri vefur Viðskiptaráðsins sem undirstrikar gott samstarf þessara aðila í gegnum árin. 

Viðskiptaráð Íslands hafa unnið að því markmiði síðastliðin 90 ár að stuðla að framförum í viðskiptalífinu, jafnt með beinum og óbeinum hætti, ásamt því að vera uppspretta nýrra hugmynda fyrir viðskiptalífið. En eins og segir á heimasíðu ráðsins, þá er það heilbrigt og kraftmikið atvinnulíf sem skapar forsendur til framfara og bættra lífskjara og með því geti viðskiptalífið skipað sér í fremstu röð í alþjóðlegu samhengi.

Vefurinn virkar sem upplýsingamiðstöð fyrir viðskiptalífið, fyrir þá dagskrá sem er hjá Viðskiptaráðinu hverju sinni. Þarna birtast fréttir af starfseminni, hvað er á döfinni og hvaða þjónustu má nálgast hjá ráðinu. Jafnframt er hægt að skrá sig á póstlista í sama tilgangi eða hreinlega gerast félagi í gegnum rafrænt eyðublað sem sett er upp í vefnum.

Útlitshönnun vefsins var í höndum Arngríms Arnarsonar, en vefurinn er eins og áður kom fram byggður á Outcome vefstjóranum.

Viðskiptaráð Íslands

www.vi.is


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Tímaáætlanir standast og starfsmenn veita gagnlegar ábendingar"

Hag og upplýsingasvið
Sambands íslenskra sveitarfélaga


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome fréttabréfakerfi - betri samskipti við viðskiptavini