Fréttir
4. febrúar 2009
Outcome framkvæmir viðhorfskönnun fyrir Viðskiptaráð Íslands
Viðskiptaráð Íslands (VÍ) fékk Outcome hugbúnað til þess að framkvæma rafræna viðhorfskönnun, sem send var á tæplega 300 æðstu stjórnendur eða forsvarsmenn íslenskra fyrirtækja sem aðild eiga að VÍ. Könnunin var send í tilefni af Viðskiptaþingi sem halda átti 4. febrúar en frestað var til næsta mánaðar. Framkvæmdin gekk vel og var svarhlutfall vonum framar eða 60%.
Viðskiptaráð vildi kanna hug aðildarfélaga til afleiðinga bankahrunsins á rekstrarstöðu fyrirtækja þeirra, stöðu stjórnsýslu, aðgerða til úrbóta og afstöðu til Evrópusambandsaðildar. Niðurstaðan var um margt athyglisverð þar sem ríflega helmingur fyrirtækja telur rekstrarstöðu sína eiga eftir að versna næsta hálfa árið með tilheyrandi uppsögnum. Meginástæður erfiðleika í rekstri nú röktu aðildarfélagar Viðskiptaráðs til falls krónunnar, hás vaxtastigs, samdráttar í eftirspurn og takmarkaðs aðgangs að lánsfé.
Afstaða til ríkistjórnarinnar og Evrópusambandsins var könnuð og kom margt áhugavert þar í ljós. Í megindráttum var niðurstaðan sú að meirihlutinn er samþykkur Evrópusambandsaðild og að þörf sé á breytingum í ríkisstjórn og stjórnsýslu. Hins vegar vildi yfir helmingur aðspurðra ekki að boðað yrði til kosninga árið 2009.
Afstaða til mun fleiri atriða voru könnuð en útdráttur úr könnuninni ásamt niðurstöðunum í heild má finna hér á vef Viðskiptaráðs Íslands.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Góð og lipur þjónusta á sanngjörnu verði"
Margrét Sveinbjörnsdóttir,
AP almannatengsl









