Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

1. apríl 2009

Staðlaráð Íslands opnar samevrópskan staðlavef

Fyrir skömmu opnaði vefur á vegum Staðlaráðs Íslands sem helgaður er stöðlum í rafrænum viðskiptum. Vefurinn er samevrópskur og var Staðlaráði Íslands falið að sjá um rekstur hans. Í vefnum er að finna upplýsingagjöf um ýmis gögn sem tengjast viðfangsefninu svo og upplýsingar um viðburði og fundi sem helgaðir eru rafrænum viðskiptaferlum.

Vöxtur á sviði rafrænna samskipta og viðskipta á síðustu árum hefur verið gríðarlegur. Þar sem þessir ferlar eru nýir á nálinni og tækniþróun gríðarleg hefur umhverfið og aðferðir mótast jafnóðum. Þörfin fyrir stöðlun eykst samfara aukinni útbreiðslu og þörfin fyrir einfalda og auðvelda samhæfingu eykst að sama skapi. Því er viðfangsefnið þarft á okkar tímum.

Staðlaráð Íslands sýndi framsækni og frumkvæði á sínum tíma þegar sala staðla hófst á netinu en ætla má að sala rafrænna gagna af ýmsum toga muni bara aukast á næstu árum. Verkefnisvefurinn er byggður á Outcome vefstjóranum, en vefur og vefverslun Staðlaráðs var á sínum tíma sett upp af Outcome hugbúnaði.

GITB

www.ebusiness-testbed.eu


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Kynntu þér Outcome kannanakerfið