Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

18. maí 2009

EURES - Evrópsk vinnumiðlun býður störf um alla Evrópu

Í fyrrihluta maímánaðar opnaði Eures, evrópsk vinnumiðlun nýjan vef sem byggður er á Outcome vefstjóranum. Vefurinn inniheldur mikið af upplýsingum sem gagnast þeim sem hug hafa á að leita sér að vinnu á evrópska efnahagssvæðinu eða vilja fá starfsfólk erlendis frá. Um er að ræða fjölþættar upplýsingar um það hvernig fólk skuli bera sig að við atvinnuleit og að hverju þurfi að huga þegar leitað er út fyrir landssteinana eftir starfi.

Einnig má finna á vefnum upplýsingar fyrir atvinnurekendur sem vilja fá til sín starfsfólk frá Evrópu, en ein af meginreglum EES er frjálst flæði starfsfólks á milli þeirra ríkja sem aðild eiga að samningnum.   Sömuleiðis má finna upplýsingar fyrir fólk af erlendu bergi brotnu, sem áhuga hafa á að starfa á Íslandi.

Loks er að finna á vefnum töluvert af atvinnutilboðum sem berast frá Evrópu til Íslands í hverri viku. Þar má finna marga spennandi kosti, hvort sem horft er til skemmri eða lengri dvalar á erlendri grund.

Vefurinn er hannaður af Arngrími Arnarsyni og byggður á Outcome vefstjóranum, en fyrri vefur Eures, evrópskrar vinnumiðlunar var einnig byggður á því kerfi.  Rekstur vefsins er í höndum starfsfólks Eures á Íslandi.

Eures - evrópsk vinnumiðlun

www.eures.is


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Tímaáætlanir standast og starfsmenn veita gagnlegar ábendingar"

Hag og upplýsingasvið
Sambands íslenskra sveitarfélaga


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome vefstjóri vandaðir vefir byggðir á öflugu en einföldu vefumsjónarkerfi