Fréttir
20. maí 2009
Kannanir í 18 löndum
Á vormánuðum sá Outcome hugbúnaður um framkvæmd og umsýslu rafrænna spurningakannana í 24 starfstöðvum Actavis í 18 löndum. Um var að ræða starfmannakönnun sem sett var upp á 10 tungumálum. Könnun af þessi tagi gerir Actavis árlega í sínum starfsstöðvum og Outcome hefur síðustu ár komið að framkvæmdinni, en í ár var Outcome hugbúnaði falið að sjá um alla meginþætti hennar.
Í metnaðarfullu starfi sínu leggur Actavis áherslu á mannauð fyrirtækisins og það ekki bara í orði, heldur einnig á borði. Í þessum könnunum var metinn skilningur og afstaða starfsfólks til stefnu og gilda fyrirtækisins. Hlutverk Outcome var að setja upp kannanir á mismunandi tungumálum sem sendar voru til starfsfólks í starfsstöðvum Actavis víða um heim. Í úrvinnslunni voru bæði unnar greiningar fyrir hverja starfsstöð en einnig var heildarniðurstöðum skilað til Actavis.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Góð og lipur þjónusta á sanngjörnu verði"
Margrét Sveinbjörnsdóttir,
AP almannatengsl









