Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30. júní 2009

Samhæfð skólavog 26 skóla í höndum Outcome hugbúnaðar

Skólavogin er röð viðhorfskannana sem framkvæmdar eru á ári hverju á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga í völdum skólum. Framkvæmd skólamats 2009 er lokið og hafa nú allir 26 skólarnir fengið niðurstöður sínar ásamt niðurstöðum heildarinnar til samanburðar.

Á hverju ári eru könnuð viðhorf nemenda, foreldra og starfsmanna tiltekinna skóla til starfsemi þeirra. Jafnframt er búin til heildarniðurstaða með öllum skólum og geta skólarnir metið meðaltöl einstakra spurninga við meðaltöl heildarinnar. Með þessu móti er hægt að sjá með skýrum hætti styrk og veikleika skólanna á einstökum sviðum og leggja í framhaldinu í markvissar aðgerðir eða úrbætur, ef þess gerist þörf.  

Framkvæmdin sjálf var með mismunandi hætti í einstökum skólum þar sem þeir fengu að ráða hvaða leið var farin í upplýsingaöflun á hverjum stað. Langflestir skólar kusu að senda könnun með tölvupósti til foreldra og starfsmanna en létu nemendur svara með tölvum í skólunum í stýrðu umhverfi.  Svörun með þessum hætti kom vel út og var almenn ánægja með lengd og framkvæmd kannanna.

Starfsmenn Outcome þakka öllum þeim fjölmörgu aðilum sem komu að verkinu ánægjulegt og gott samstarf.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Lipurt og hjálpsamt starfsfólk"

Sigrún Ingimarsdóttir
Verkefnastjóri - LSH


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit