Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

7. ágúst 2009

Yfir 40 þúsund atkvæðaseðlar sendir með Outcome kosningakerfinu

Outcome kosningakerfið er ný lausn Outcome hugbúnaðar. Á liðnu ári hefur verið unnið að uppbyggingu rafrænnar kosningalausnar sem tekur mið af íslenskum aðstæðum. Samhliða því hafa verið settir upp samskipta- og framkvæmdaferlar sem skila snurðulausum og öruggum atkvæðagreiðslum.  Á þessu ári hefur náðst frábær árangur í fjölda rafrænna atkvæðagreiðsla. 

Nú þegar er búið að senda út yfir 40 þúsund atkvæðaseðla fyrir um 20 félagasamtök. Viðbrögðin hafa undantekningalaust verið góð enda dregur þessi aðferðafræði úr kostnaði á sama tíma og öll kosningaframkvæmd verður auðveldari og markvissari.  

Starfsmenn Outcome sjá um hönnun og uppsetningu atkvæðaseðla og móttöku og talningu rafrænna atkvæða. Einnig sjá þeir um að afhenda niðurstöður stuttu eftir lok kosningar eða atkvæðagreiðslu. Allir sem nýtt hafa kerfið eru á einu máli um það að það sé örugg, hagkvæm og fljótleg leið til þess að ná fram úrslitum kosninga eða atkvæðagreiðslna og að þátttakan sé mun betri en með öðrum leiðum. Einnig telja menn jákvætt og lýðræðislegt að óháðir aðilar sjái um framkvæmd af þessu tagi. Fréttir um einstaka kosningar/atkvæðagreiðslur og nánari upplýsingar um þjónustuna má finna hér.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit