Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

7. október 2009

Outcome á meðal 200 sprotafyrirtækja

Frjáls verslun - 200 áhugaverð sprotafyrirtækiAnnað árið í röð er Outcome hugbúnaður á lista Frjálsrar verslunar yfir áhugaverðustu sprotafyrirtæki á Íslandi. Á bak við val listans eru fjölmargar ábendingar að sögn blaðsins. Þetta er mikil viðurkenning á þeirri miklu vinnu sem starfsmenn Outcome hafa lagt í þróun og nýsköpun. 

Þetta er í annað sinn á jafn mörgum árum sem Frjáls verslun gefur út lista af þessu tagi. Listinn sýnir svo ekki verði um villst að gróskan í íslenskum frumkvöðlafyrirtækjum er mikil í landinu. Í blaðinu er velt upp þeirri spurningu hvort upplýsingatæknigeirinn sem mikið var talað um á níunda áratugnum sé að vaxa fiskur um hrygg á ný og hugsanlega leika lykilhlutverk í framtíð Íslands.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Góð og lipur þjónusta á sanngjörnu verði"

Margrét Sveinbjörnsdóttir,
AP almannatengsl


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit