Fréttir
12. október 2009
Outcome endurnýjar vef LÍÚ
Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) var að opna nýjan og glæsilega vef. LÍÚ fékk Outcome hugbúnað til að endurhanna vef samtakanna en samtökin eru meðal elstu viðskiptavina fyrirtækisins og tímabært var að færa vefinn í nútímalegra horf og yfirfara efnisskipan vefsins með hliðsjón að nýjum áherslum.
Markmiðið með breytingunum var að gera vefinn einfaldari, markvissari og aðgengilegri fyrir alla. Vefurinn var settur upp á Outcome Vefstjórann 4.8 sem auðveldar og flýtir fyrir uppfærslu vefins ásamt stýringu efnis og aðgerða sem mikilvægastar eru á hverjum tíma fyrir notendur hans.
Hönnun vefsins var í höndum Arngríms Arnarsonar vefhönnuðar en reynsla hans af vefhönnun fyrir samtök og stofnanir réð þar mestu, ásamt næmni hans fyrir smekklegri og árangursríkri hönnun. Starfsmenn Outcome hugbúnaðar óska LÍÚ til hamingju með nýjan og glæsilega vef.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Verð, þjónustulund og fagmennska til stakrar fyrirmyndar"
Jóhannes Ingi Davíðsson
Framkvæmdarstjóri IMARK









