Fréttir
16. október 2009
Samtök atvinnulífsins (SA) kanna atvinnuhorfur
Outcome hugbúnaður hefur frá árinu 2008 haft umsjón með reglubundnum viðhorfsmælingum SA á meðal sinna félaga þar sem framtíðarhorfur í íslensku atvinnulífi eru mældar.
Athyglisverðustu niðurstöður könnunarinnar eru þær að sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA hyggjast ekki gera breytingar á starfsmannafjölda á næstu sex mánuðum og 14% áforma að fjölga starfsmönnum, meirihlutinn þó innan við fimm starfsmenn. Þá hafa 27% fyrirtækja brugðið á það ráð að breyta fullum störfum í hlutastörf á árinu 2009 til þess að forðast uppsagnir en í sambærilegri könnun í febrúar höfðu 18% fyrirtækja brugðið á það ráð. Fyrirtækin í könnuninni endurspegla sjávarútveg, iðnað, byggingastarfsemi, veitur, verslun og samgöngur, hótel og veitingahús, fjármála- og tryggingafyrirtæki. Áætlað er að í þessum atvinnugreinum starfi um 87.000 manns um þessar mundir.
Framkvæmd kannana er alfarið i höndum starfsmanna Outcome, þ.e. uppsetning könnunar, útsending og skil á niðurstöðum: Niðurstöðum var skilað sem heildarskýrslu með krosskeyrslum en einnig skýrslu fyrir hvert aðildarfélag. Samstarf Outcome hugbúnaðar og SA við framkvæmd þessara skoðanakannana hefur gengið snurðulaust fyrir sig og er dæmi um hvernig nýting upplýsingatækninnar leiðir bæði til aukins hagræðis og skilar stórbættum framkvæmdahraða.
Sjá nánar á vef SA: http://www.sa.is/frettir/almennar/nr/4642/
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Einfalt og þægilegt kannanakerfi sem uppfyllir okkar öryggis- og gæðakröfur"
Hrannar Már Hallkelsson
Teris









