Fréttir
29. október 2009
Nýtt kerfi - Outcome Fréttabréfakerfið
Nú í október var Outcome fréttabréfakerfið formlega kynnt til sögunnar sem nýtt kerfi markaðsett undir Outcome vörumerkinu. Með tilkomu þess eru lykilvörur Outcome hugbúnaðar orðnar fimm talsins. Um er að ræða heildstætt kerfi þar sem auðvelt er að setja upp og senda út sérhönnuð fréttabréf í tölvupósti. Lausn þessi er kjörin fyrir félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki.
Skemmst er frá því að segja að móttökur hafa verið vonum framar og margir viðskiptavinir okkar hafa nú þegar hafið útsendingu rafrænna fréttabréfa. Aðalstyrkur kerfisins byggir á einföldu vinnuumhverfi, skilvirku útsendingarferli og lýsandi tölfræði sem fæst í kjölfar útsendinga.
Lýsandi tölfræði um árangur fréttabréfs gefur upplýsingar um:
-
Hve mörg bréf fóru út
-
Hve margir opnuðu fréttabréfið
-
Greiningu á fjölda sendra bréfa og fjölda opnaðra bréfa
-
Hvaða tenglar í fréttabréfinu voru opnaðir
-
Hve margir afskráðu sig
-
Hve margir sendu bréfið til annarra

Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Verð, þjónustulund og fagmennska til stakrar fyrirmyndar"
Jóhannes Ingi Davíðsson
Framkvæmdarstjóri IMARK
Leit









